Krakkablak HK
Krakkablak er hinn fullkomni blakleikur fyrir 6 til 12 ára krakka. Krakkablak felur í sér meiri virkni hjá börnunum og allir fá að vera með í leik sem tekur mið af hreyfifærni leikmanna og þróun í getu. Því skiptir engu máli hvort þátttakandi er nýbyrjaður að æfa eða hefur æft, því allir geta spilað krakkablak.
Krakkablak hefur allt:
§ Það er skemmtilegt
§ Allir geta verið með
§ Það er áskorun fyrir alla - styrkleikastig fyrir alla
§ Mikil hreyfing
§ Rétt þróun hreyfiþroska
§ Erfiðleikagráða tækniæfinga fer stighækkandi
§ Það er gaman og maður svitnar
Krakkablaksnámskeið HK verður haldið í Fagralundi og Vallakór í sumar frá kl.9:00-12:00. Umsjón með námskeiðinu hefur íþróttakennarinn og þjálfari yngri flokka HK í blaki, Ásta Gylfadóttir og meistaraflokksþjálfarinn Zdravko Demirev.
Fagrilundur kl. 09:00 til 12:00
Námskeið 1 14. júní - 18. Júní
Námskeið 3 28. júní - 2. júlí
Námskeið 5 9. ágúst - 13. ágúst
Kórinn / Vallakór kl. 13:00 til 16:00
Námskeið 5 9. ágúst - 13. ágúst
Verð fyrir eina viku á krakkablaksnámskeiði HK er 5000.- krónur.
Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu HK, www.hk.is, og hjá Ástu á netfanginu astag@kopavogur.is
Skráning hefst 14.maí og fer fram á www.hk.is og á netfanginu namskeid@hk.is
Til baka
Miðvikudaginn 8.september
18.00 ÍBV/KFS - HK/Ýmir, 2.ka., knatt.
Fimmtudaginn 9.september
17.15 Breiðablik - HK, Undanúrslit 3.ka., knatt.
Föstudaginn 10.september
17.00 HK - Breiðablik, úrslitaleikur 4.ka.A, knatt.
Laugardaginn 11.september
14.00 HK - Þór, 1.deild ka., knatt.
Þriðjudaginn 14.september
17.30 HK/Ýmir - Fram, 2.ka., knatt.
Laugardaginn 18.september
14.00 Víkingur R. - HK, 1.deild ka., knatt.

Nýtt Æfingahús í Fagralundi