Fréttir

25. júlí 2010

4. fl.karla: Silfur hjá C-liðinu á ReyCup

HK liðin tvö í 4. flokki karla sem spiluðu á ReyCup mótinu um helgina stóðu sig mjög vel og annað liðið komst á verðlaunapall. C liðið hafnaði í 2. sæti á mótinu og A liðið lenti í 4. sæti. Mótinu lauk síðdegis í Laugardalnum í Reykjavík.

Bæði liðin töpuðu reyndar síðustu leikjum mótsins. C liðið keppti við lið Þróttar 2 um gullið eftir hádegi og lenti tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik. Strax á upphafsmínútum síðari hálfleiks skoruðu HK strákarnir og áttu síðan margar góðar sóknir en fengu dæmda á sig vafasama vítaspyrnu skömmu síðar sem Þróttarar nýttu sér. Undir lok leiksins minnkuðu HK strákarnir muninn en lengra komust þeir ekki. Úrslit leiksins urðu því 3:2 fyrir Þrótt.

A liðið keppti fyrr við Fjarðabyggð um þriðja sætið en tapaði þeim leik.

Árangur liðanna beggja er hins vegar mjög góður ekki síst í ljósi þess að marga lykilleikmenn vantaði.

Mynd: "Silfurdrengirnir" úr HK í flokki C liða 4. flokks. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvar endar HK í 1. deild karla í sumar?

1.-2. sæti


3.-4. sæti


5.-6. sæti


Neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið