27. júlí 2010
Ólafur kominn aftur í HK
HK-ingurinn Ólafur V. Júlíusson er á ný kominn í meistaraflokkshóp félagsins eftir rúmlega árs fjarveru. Hann hefur leikið með Ými að undanförnu og spilaði með Víkingi í Ólafsvík fyrri hluta síðasta sumars.
Ólafur er 31 árs gamall og er markahæsti leikmaðurinn í sögu meistaraflokks HK með 59 mörk, þar af 42 í deildaleikjum, og er jafnframt sá fjórði leikjahæsti með 161 leik. Ólafur hefur skorað minna seinni árin, enda spilað á miðjunni en ekki frammi eins og áður. Í sumar hefur hann þó gert 4 mörk í 5 leikjum með Ými í 3. deildinni.
Ólafur er kominn með leikheimild og gæti því tekið þátt í leiknum gegn Gróttu í 1. deildinni á Kópavogsvellinum annað kvöld.
Damir Muminovic hefur verið lánaður til 2. deildarliðs Hvatar á Blönduósi og leikur með því út tímabilið. Damir hefur aðeins verið með í þremur leikjum HK í 1. deildinni í sumar.
Til baka
Miðvikudaginn 8.september
18.00 ÍBV/KFS - HK/Ýmir, 2.ka., knatt.
Fimmtudaginn 9.september
17.15 Breiðablik - HK, Undanúrslit 3.ka., knatt.
Föstudaginn 10.september
17.00 HK - Breiðablik, úrslitaleikur 4.ka.A, knatt.
Laugardaginn 11.september
14.00 HK - Þór, 1.deild ka., knatt.
Þriðjudaginn 14.september
17.30 HK/Ýmir - Fram, 2.ka., knatt.
Laugardaginn 18.september
14.00 Víkingur R. - HK, 1.deild ka., knatt.

Upplýsingar um mótið 2010
Reykjavíkurmót 2010