Fréttir

27. júlí 2010

HK-Grótta: Fimm breytingar á hópnum

Það eru hvorki fleiri né færri en fimm breytingar á leikmannahóp HK fyrir leikinn gegn Gróttu í 14. umferð 1. deildar karla sem fer fram á Kópavogsvelli annað kvöld klukkan 20.

Hafsteinn Briem og Leifur Andri Leifsson taka út leikbann og þeir Atli Valsson og Ingi Þór Þorsteinsson meiddust í Þróttarleiknum og eru úr leik í bili. Þá er markvörðurinn Jörundur Kristinsson ekki í hópnum að þessu sinni.

Brynjar Víðisson kemur inní hópinn í fyrsta skipti síðan í 2. umferðinni í vor en hann var lengi frá vegna meiðsla og tók sér frí frá fótboltanum um skeið eftir það. Ólafur V. Júlíusson og Andri Valgeirsson eru komnir úr Ými og fara beint inní hópinn, Axel Birgisson kemur í hópinn eftir að hafa misst af síðustu leikjum, og markvörðurinn Egill Þorsteinsson kemur fyrir Jörund.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
Egill Þorsteinsson  
Ögmundur Ólafsson

Varnarmenn:
Axel Birgisson 
Ragnar Mar Sigrúnarson
Davíð Magnússon 
Ásgrímur Albertsson 
Hörður Árnason 

Miðjumenn:
Andri Valgeirsson
Brynjar Víðisson 
Ólafur V. Júlíusson 
 
Framherjar:
Aaron Palomares 
Birgir Ólafur Helgason 
Birgir Magnússon 
Hólmbert Aron Friðjónsson 
Jónas Grani Garðarsson 
Samúel Arnar Kjartansson 

Utan hóps:
Almir Cosic (í fríi) 
Atli Valsson (meiddur)
Bjarki Már Sigvaldason (meiddur)
Hafsteinn Briem (í leikbanni)
Hörður Magnússon (meiddur)
Ingi Þór Þorsteinsson (meiddur)
Jörundur Kristinsson 
Leifur Andri Leifsson (í leikbanni)
Stefán Tandri Halldórsson (meiddur)
Bjarki Eldjárn (spilar með Ými)
Damir Muminovic (í láni hjá Hvöt)
Jóhann Ingi Jóhannsson (spilar með Ými)
Jón Einar Hjaltested (spilar með Ými)
Þórður Birgisson (í láni hjá KS/Leiftri)

Mynd: Brynjar Víðisson kemur inní hópinn eftir rúmlega tveggja mánaða fjarveru.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvar endar HK í 1. deild karla í sumar?

1.-2. sæti


3.-4. sæti


5.-6. sæti


Neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið