Fréttir

29. júlí 2010

Ásgrímur: Bættum í eftir því sem á leið

Við byrjuðum leikinn ágætlega og komumst yfir með góðu marki, en eftir það datt botninn svolítið úr þessu hjá okkur," sagði Ásgrímur Albertsson fyrirliði HK eftir jafnteflið við Gróttu í gærkvöld, 2:2, í 1. deild karla.

"Það vantaði meiri yfirvegun og þolinmæði þegar við vorum með boltann, auk þess sem það var lítil hreyfing á boltalausum mönnum og því gekk spilið hjá okkur ekki vel. Þetta batnaði mikið hjá okkur í seinni hálfleik og við spiluðum mun betur. Þá boltinn gekk miklu betur á milli manna og við áttum margar góðar sóknir.

Það var líka jákvætt að við gáfumst aldrei upp heldur bættum í eftir því sem leið á leikinn, og vorum í raun nálægt því að taka öll þrjú stigin. Mennirnir sem hafa verið að koma inn í liðið núna undanfarið eiga líka mikið hrós skilið. Við höfum lent í  talsverðum vandræðum með mannskapinn hjá okkur, bæði útaf meiðslum og leikbönnum, og þeir sem hafa komið inn í liðið hafa staðið sig mjög vel. Bæði þessir gömlu jálkar og svo ungu strákarnir sem hafa komið inn í þetta hjá okkur," sagði Ásgrímur Albertsson.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvar endar HK í 1. deild karla í sumar?

1.-2. sæti


3.-4. sæti


5.-6. sæti


Neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið