2. mars 2004
HK að eilífu, Amen
Brynjar Valsteinsson hefur nú svarað spurningum hk.is. Brynjar er 21 árs gamall og hefur verið í HK alla tíð, "HK að eilífu, Amen" eins og hann orðaði það sjálfur. Þegar kom að spurningunni um erfiðasta andstæðinginn stóð ekki á svari en það var að sjálfsögðu Folinn sem varð fyrir valinu. Fyrir kvennþjóðina er rétt að benda á það að þessi happafengur er á lausu.
Hér fyrir neðan má lesa viðtal við Binna:
Fullt nafn: Brynjar Freyr Valsteinsson
Gælunafn: Ekkert sérstakt
Aldur: 21
Giftur/sambúð: Nóbb..
Börn: Engin
Hvað eldaðir þú síðast?: hmmm...hreinlega man það ekki !
Uppáhaldssjónvarpsefni?: 24
Besta bíómyndin?: Þær eru svo margar, það sem dettur fyrst í kollinn er
Pulp Fiction og Braveheart. Einnig allar myndir frá Q.Tarantino og R.Rodriguez.
Hvaða tónlist hlustar þú á?: Flest allt.
Uppáhaldsútvarpsstöð?: Enginn eins og er, allar frekar leiðinlegar. Nema
þátturinn hjá Valtý á Skonrokk !
Uppáhaldsdrykkur?: Malt og Appelsín og svo er vatnið mjög gott.
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?): Nei, það held ég
ekki.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn?: Með því að vinna hann að
sjálfsögðu !
Hvað ertu búinn að spila marga leiki með HK? Hef ekki hugmynd.
Hvaða liðum hefur þú spilað með öðrum en HK? HK að eilífu, Amen.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Breiðablik, hafa það á hreinu.
Hvert var átrúnaðargoð þitt í handbolta á yngri árum? Bjarki Sig, J.
Richardsson. Svo fannst mér alltaf helv gaman að horfa á Alfreð Gísla í B keppninni '89.
Erfiðasti andstæðingur?: Folinn
Besti samherjinn: Eins og það er erfitt að gera upp á milli, þá er Villi Gauti og Jón Heiðar mínir bestu samherjar. Svo er maður nú búinn að þekkja hann Óla "litla" frekar lengi.
Sætasti sigurinn? Ég myndi segja bikarinn í fyrra !
Mestu vonbrigði? Að fá ekki að spila meira í evrópukeppninni í vetur.
Uppáhalds lið í þýska handboltanum?: Göppingen(Áfram Garcia !)
Uppáhaldhandboltamaður? Karl Gunnarsson aka Folinn(Studmeister)
Besti íslenski handboltamaður fyrr og síðar? Er það ekki Ólafur Stefánsson
Efnilegasti handboltamaður landsins? Bjöggi
Grófasti leikmaður deildarinnar? ????
Besti íþróttafréttamaðurinn? Enginn...jú Bjarni Fel er Kóngurinn ! :-)
EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Allir aðrir
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Mér finnst nú mjög gaman að rifja upp þegar Jón Heiðar datt á
andlitið og rann 2-3 metra á andlitinu. Vorum að spila á móti KA, minnir mig.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaflokki? Það var heimaleikur á móti Haukum þegar Valdi Gríms var að þjálfa. Gekk ekkert allt of vel þá !
Eitthvað að lokum?: - Fegurðinn Blekkir -

Leikmenn
Leikmenn 2009-2010