Fréttir

24. mars 2004

Úrslitakeppnin um helgina

Körfuboltamenn í HK undirbúa sig nú af kappi fyrir úrslitakeppnina um helgina í Vík.  Undirbúningurinn felst aðallega í því að meiðast og spila illa á æfingum til að klára þann skammt fyrir helgina.  Leikjaniðurröðunin liggur fyrir og er komin á körfuboltasíðuna okkar. 

HK hefur aldrei í sögu félagsins sent jafn fjölmennt og vel mannað lið í úrslitakeppnina í körfuknattleik.  Má því búast við að álagið drefist vel á leikmenn og árangurinn verði eftir því.

Skv. skoðanakönnun félagsins þá voru niðurstöðurnar þessar:
Í hvaða sæti lenda HK í úrslitakeppninni í Vík?  
1. sæti 26.1%
2. sæti 8%
3. sæti 26.1%
4. sæti 9.1%
5. sæti 4.5%
Neðar 26.1%
Það er því nokkuð ljóst að HK-menn hafa mismikla trú á okkar liði og nú er bara sanna að 26,1% félagsmanna hafi haft rétt fyrir sér.

Nú er bara að gyrða sig í brók og taka keppnina með stæl, áfram HK.




Til baka

Á næstunni

Enginn atburður skráður

Könnun

Í hvaða sæti í riðlakeppninni lendir HK í vetur?

1. sæti


2. sæti


3. sæti


4. sæti


5. sæti


OZON-Vefumsjónarkerfið