Fréttir

14. júní 2004

HK mætir Reyni úr Sandgerði í bikarnum

HK mætir Reyni úr Sandgerði í 16-liða úrslitunum í bikarkeppni karla, VISA-bikarnum. Dregið var á Hótel Loftleiðum nú í hádeginu. Leikurinn fer fram á Kópavogsvellinum föstudaginn 2. júlí og hefst klukkan 19.15.

Reynir var eina félagið úr 3. deild sem komst í 16-liða úrslit en Sandgerðingar komu mjög á óvart í 32-liða úrslitunum þegar þeir sigruðu 1. deildarlið Þórs frá Akureyri, 1-0, á heimavelli sínum í Sandgerði.

"Ég er að sjálfsögðu ánægður með þetta, og ekki síst með að fá heimaleik, en það er alveg ljóst að Reynir getur orðið mjög hættulegur andstæðingur. Að sumu leyti hefði verið betra að mæta sterkara liði, því þá koma menn einbeittari til leiks. En nú eigum við vissulega góða möguleika á að komast í átta liða úrslit keppninnar í fyrsta skipti og auðvitað stefnum við að því. Gulli er með þetta allt í höndunum," sagði Gunnar Guðmundsson, þjálfari meistaraflokks karla, við HK-vefinn þegar niðurstaðan var ljós, en Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður og fyrirliði HK, fór upp og dró mótherja HK, rétt eins og hann gerði fyrir 32-liða úrslitin þegar hann dró Skagamenn.

Gunnar kvaðst þekkja aðeins til Reynismanna eftir tvo leiki gegn þeim í vor. "Við mættum þeim í 23-ára keppninni og svo lék HK-b/Drangur við þá í 3. deildinni. Reynismenn eru með vel skipulagt lið og góða stráka, og það segir allt um þeirra styrkleika að þeir skyldu slá Þórsara út úr keppninni," sagði Gunnar.

Reynismenn hafa spilað þrjá leiki í 3. deildinni það sem af er tímabilinu. Þeir gerðu jafntefli, 2-2, við HK-b/Drang í fyrsta leik, síðan 0-0 jafntefli við ÍH, og unnu loks Ægi, 4-2, í Þorlákshöfn. Í bikarnum sigruðu Reynismenn utandeildaliðið Hvíta riddarann, 4-2, í 1. umferð og lögðu síðan Þórsara að velli.

Kunnustu leikmenn Reynis eru Georg Birgisson, sem lék með Keflavík um árabil og hefur spilað 104 leiki í efstu deild, og Sverrir Þór Sverrisson, einn lykilmanna Njarðvíkur í fyrra, sem á að baki 62 leiki í efstu deild með Grindavík og Keflavík. Þjálfari Reynis er Gunnar Oddsson, annar leikjahæsti knattspyrnumaðurinn í efstu deild hér á landi með 294 leiki, en hann hefur ekki spilað með liðinu til þessa á tímabilinu. Helstu markaskorarar Reynis í fyrra voru Vilhjálmur Skúlason sem skoraði 12 mörk í 3. deildinni og Smári Guðmundsson sem skoraði 10.

Heimasíða Reynis, smellið hér.

ÍA var eina liðið úr úrvalsdeild sem ekki komst í 16-liða úrslit keppninnar, og það voru að sjálfsögðu HK-ingar sem báru ábyrgð á því að fella bikarmeistarana, eins og alþjóð veit. Þessi lið mætast í 16-liða úrslitum:

Víkingur R. - KA
Njarðvík - KR
HK - Reynir S.
Þróttur R. - Valur
Fram - Keflavík
ÍBV - Stjarnan
Fylkir - Grindavík
FH - Afturelding





Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvar endar HK í 1. deild karla í sumar?

1.-2. sæti


3.-4. sæti


5.-6. sæti


Neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið