Íþróttaskóli HK Hinn geysivinsæli íþróttaskóli HK er að fara af stað á haustönn 2010. Íþróttaskóli HK er fyrir 3 – 5 ára börn á miðvikudögum í íþróttahúsi Kársnesskóla. Hægt er að velja milli tveggja tíma, 16:10 - 17:00 og hins vegar strax á eftir kl. 17:00 - 17:50. Umsjónarmenn eru þeir Magnús Orri Sæmundsson íþróttakennari og Hilmar Rafn Kristinsson grunnskólakennari. Markmið íþróttaskóla HK er að gefa börnum kost á hreyfinámi sem er bæði vandað og fjölbreytt í hlýlegu og notalegu umhverfi í íþróttahúsi Kársnesskóla. Leikir og þrautabrautir skipa stærstan þátt í náminu. Reynt er að hafa æfingar sem fjölbreyttastar þannig að allir fái eitthvað við sitt hæfi. Engin áhersla er lögð á keppni eða afrek tengd keppni. Það er unnið bæði með fín- og grófhreyfingar. Skólinn er fyrir bæði stráka og stelpur og er unnið með þroskaþætti barnsins í huga. Félagsþroski, samvinna og það að taka tillit til annarra er stór þáttur í starfinu. Foreldrar taka virkan þátt í tímum með því að aðstoða börnin sín. Þar með gefst þeim mikilvægt tækifæri að kynnast börnum sínum enn betur við aðrar aðstæður en venjulega. Gott er að koma í léttum íþróttafötum og helst að vera berfætt ef kostur er. Námskeiðið hefst 22. september og stendur til 8. desember 2010.. Verð fyrir námskeiðið er 10.000 krónur fyrir 12 tíma og greiðist í upphafi námskeiðs. Gott er að skrá fyrirfram því þátttökufjöldi er takmarkaður. Skráning er hafin hjá magnus@hk.is, frekari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 848-2858 hjá Magnúsi Orra.
Til baka
Föstudaginn 10.september
14.00 ÍBV/KFS - HK/Ýmir, 2.ka., knatt.
Föstudaginn 10.september
16.30 Breiðablik - HK, Úrslitakeppni 4.ka.B, knatt.
Föstudaginn 10.september
18.00 HK - Breiðablik, úrslitaleikur 4.ka.A, knatt.
Föstudaginn 10.september
Reykjavík Open: HK - Fjölnir
Laugardaginn 11.september
14.00 HK - Þór, 1.deild ka., knatt.
Laugardaginn 11.september
15.00 HK - Stjarnan, Úrslitakeppni 4.ka.B, knatt.

Nýtt Æfingahús í Fagralundi