Leikmenn
Til baka
| Ólafur V. Júlíusson
Fæddur: 1978
Mfl.leikir: 166 Mfl.mörk: 60 Staða: Miðjumaður Ferill í mfl. HK: 2000-2003, 2005-2009, 2010 |
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Leikir/mörk í efstu deild: 21/1 Önnur félög í mfl.: Ýmir, Fylkir, Afturelding, Valur, Þór. Lék með ÍK og HK í yngri flokkunum og var kjörinn knattspyrnumaður HK 1994, þá á eldra ári í 3. flokki. Eftir mislanga dvöl hjá fjórum félögum og 9 leiki með Val í úrvalsdeild kom hann aftur til HK vorið 2000 og spilaði 14 leiki í 2. deildinni. Ólafur var síðan lykilmaður í meistaraliðinu í 3. deild 2001 og var markahæsti leikmaður HK með 22 mörk í 27 mótsleikjum á árinu. Árið 2002 lék hann alla 24 mótsleikina og skoraði 12 mörk, þar af 10 í 2. deildinni, og var kjörinn besti leikmaður meistaraflokks á tímabilinu. Lék alla 29 mótsleiki HK á árinu 2003 og skoraði m.a. bæði mörkin í naumu tapi, 2-3, gegn KR í bikarkeppninni. Lék sinn 100. deildaleik í síðustu umferð 1. deildarinnar. Gekk til liðs við Fylki fyrir tímabilið 2004 og spilaði þar 3 leiki í úrvalsdeildinni. Kom aftur til HK í maí 2005 og samdi við félagið út tímabilið 2006. Spilaði 20 mótsleiki árið 2005 og skoraði 5 mörk, þar af 17 leikir og 4 mörk í 1. deild. Lék sinn 100. leik með meistaraflokki í júní 2005. Setti nýtt markamet í meistaraflokki þann 31. maí 2006 þegar hann skoraði sitt 51. mark fyrir félagið og hefur bætt það síðan í 58 mörk. Spilaði 23 af 25 mótsleikjum á árinu 2006 og skoraði 7 mörk. Þar af voru 16 leikir og 6 mörk í 1. deild. Lék sinn 150. leik með meistaraflokki HK í ágúst 2007, sá þriðji til að ná þeim áfanga. Lék 17 mótsleiki árið 2007 og skoraði 3 mörk. Þar af voru 10 leikir og eitt mark í úrvalsdeildinni, 3 leikir í byrjunarliði. Var lánaður til Ýmis fyrir tímabilið 2008 en kom aftur þaðan yfir í hóp HK í júlí. Lék einn leik í úrvalsdeildinni. Spilaði alla 7 leiki HK í deildabikarnum 2009 og fyrsta leik Íslandsmótsins en gekk síðan til liðs við Víking í Ólafsvík. Kom á ný í raðir Ýmis í mars 2010. Lék 5 leiki í 3. deild og skoraði 4 mörk. Gekk til liðs við HK á ný 27. júlí 2010. Markaskor Ólafs fyrir HK. HK-leikir: Íslandsmót: 119/43 Bikarkeppni: 11/4 Deildabikar: 34/13 Kópavogsmót: 2/0 Ferill í deildakeppni:
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Til baka
Á næstunni
Föstudaginn 10.september
14.00 ÍBV/KFS - HK/Ýmir, 2.ka., knatt.
Föstudaginn 10.september
16.30 Breiðablik - HK, Úrslitakeppni 4.ka.B, knatt.
Föstudaginn 10.september
18.00 HK - Breiðablik, úrslitaleikur 4.ka.A, knatt.
Laugardaginn 11.september
14.00 HK - Þór, 1.deild ka., knatt.
Laugardaginn 11.september
15.00 HK - Stjarnan, Úrslitakeppni 4.ka.B, knatt.
Sunnudaginn 12.september
14.00 HK - Breiðablik, úrslitaleikur 3.ka., knatt.
Skoða alla skráða atburði
Könnun

Upplýsingar um mótið 2010
Reykjavíkurmót 2010