Fréttir

16. nóvember 2004

Sviptingar í körfuknattleiksdeildinni

Þjálfari körfuknattleiksdeildarinnar var rekinn í gærkvöldi.  Leikmenn hittust á fundi eftir æfingu í gærkvöldi og þar var ákveðið að reka þjálfarann.  Gengi liðsins hefur verið brokkótt í vetur og liðið alls ekki staðið undir merkjum sem besta lið 2. deildar.  Í samtali við fréttaritara tjáði leikmaður sem ekki vill láta nafns síns getið að þjálfarinn hefði verið með lélegar æfingar en ávallt stjórnað leikjum af mikilli röggsemi, útsjónarsemi og herkænsku. 

Ragnar þjálfari mun halda starfskjörum sínum út tímabilið og mun HK að sjálfsögðu standa við sinn hluta samningsins út tímabilið.  Farið hefur verið þess á leit við Ragnar að hann aðstoði nýjan þjálfara í leikjum og stjórni þeim eins og áður enda stórkostlegur stjórnandi á bekknum.  Ekki náðist í Ragnar fyrir stundu en haft er eftir samstarfsmanni hans að Ragnar hafi þekkst boðið.

Leikmenn gengu strax til samninga við fyrrum þjálfara sem kom liðinu á þann stall að vera besta lið 2. deildar, Árna Þór Jónsson.  Árni Þór tók tilboðinu strax með húrrahrópum og hóf þegar skipulagningu á nýju æfingaplani.  Er hann nú þegar búinn að gefa út matseðil fyrir leikmenn. 

Gríðarleg ritstífla hefur þjáð fréttaritara körfuknattleiksdeildar en nú er bót þar á.   HK hefur leikið fimm leiki í vetur og unnið tvo en tapað þremur.  Annar sigurinn var svo tekinn af HK-ingum þar sem Reynismenn drógu sig úr keppni.   HK er því einungis með tvö stig eftir fjóra leiki sem er gersamlega ekki sniðugt og leikmenn hafa tekið til sinna ráða.

Mynd - Ragnar var rekinn sem þjálfari en æviráðinn sem liðsstjóri




Til baka

Á næstunni

Enginn atburður skráður

Könnun

Í hvaða sæti í riðlakeppninni lendir HK í vetur?

1. sæti


2. sæti


3. sæti


4. sæti


5. sæti


OZON-Vefumsjónarkerfið