Fréttir

11. janúar 2005

Karfan að komast á fullt skrið aftur

Nú fer seinni hluti tímabilsins í körfunni að hefjast.  Eins og fram hefur komið hér á síðunni hafa verið sviptingar í deildinni.  Skipt var um þjálfara og hefur Árni komið sterkur inn og hafa HK menn ekki tapað leik eftir að hann tók við liðinu.  HK-ingar treysta á Árna sinn að hann haldi uppteknum hætti og nú eru farnir að heyrast kunnulegir frasar eins og t.d. "Næsti leikur er úrslitaleikur"!!!  Leikmenn muna eftir að hafa heyrt þennan frasa nánast allan síðasta vetur þar sem leikur nr. 2 á tímabilinu og allir eftir það flokkuðust sem úrslitaleikir í mótinu í huga þjálfarans.

HK-ingar þurfa að spýta í lófana og koma sterkir inn í seinni hluta mótsins eigi þeir að eiga möguleika á úrslitakeppnissæti. 

Gríðarlegur stuðningur hins almenna félagsmanns var við ákvörðun leikmanna að skipta um þjálfara.  Í skoðanakönnun á vefnum voru 32,8% kjósenda fylgjandi því að reka skyldi Ragnar í bað.  20,5% voru á því að skipta ætti um leikmenn og er það þekkt óánægjufylgi þeirra sem ekki hafa komist í lið hjá HK að undanförnu.  19,7% kjósenda töldu að kynna ætti leikmönnum Grænan kost!!!??  Þetta er góð hugmynd.

Nú er komin ný skoðanakönnun á vefinn, takið þátt.

Mynd - Leynivopnið




Til baka

Á næstunni

Enginn atburður skráður

Könnun

Í hvaða sæti í riðlakeppninni lendir HK í vetur?

1. sæti


2. sæti


3. sæti


4. sæti


5. sæti


OZON-Vefumsjónarkerfið