Fréttir

15. október 2006

HK byrjar tímbilið á glæstum sigri

Drengirnir í körfuboltanum koma vel undirbúnir til leiks í vetur eftir strangt undirbúningstímabil.  Fyrsti leikur vetrarins var á móti nautsterkum Mostramönnum úr Stykkishólmi.  Leikurinn var skemmtilegur á að horfa enda fjölmenntu áhorfendur í Digranes og reyndust þeir Mostramönnum sjötti leikmaðurinn inni á vellinum með stuðningi sínum.  En allt kom fyrir ekki.  HK-menn náðu forskoti strax á upphafsmínútum leiksins og létu það aldrei af hendi.  HK-ingar léku afar góðan sóknarleik og skoruðu mikið úr hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik með Þorgeir Sæmundsson og Sveinbjörn í broddi fylkingar. 

Í hálfleik var staðan 49-36 fyrir HK.  Mostramenn mættu ákveðnir í seinnihálfleikinn og náðu að minnka muninn í 10 stig.  Lengra komust þeir ekki og HK sigraði með 92 stigum gegn 70.

Leikurinn var fín byrjun á vetrinum.  11 leikmenn HK spiluðu leikinn og fengu allir að svitna hressilega og taka á því.

Mynd - Óli skrifari!!! Hvar ertu?  Tímabilið er byrjað.....




Til baka

Á næstunni

Enginn atburður skráður

Könnun

Í hvaða sæti í riðlakeppninni lendir HK í vetur?

1. sæti


2. sæti


3. sæti


4. sæti


5. sæti


OZON-Vefumsjónarkerfið