Fréttir

31. október 2006

Sigurgangan á enda í bili

Þar kom að því að HK-menn töpuðu á körfuboltavellinum í vetur.  Grindjánar voru okkur sterkari að þessu sinni.  Leikurinn var hin versta skemmtun og fengu leikmenn HK skrautlega mótherja með góðan orðaforða.  Hart var tekist á en eftir að HK-menn höfðu fengið góða byrjun og komist í 8-2 þá tók sig upp skotfár í Grindavík.  Grindjánarnir byrjuðu að salla niður þriggjastigakörfum og enduðu leikinn með því að skora alls 17 stk. þriggjastigakörfur.  Eftir þessa góðu byrjun HK náðu andstæðingarnir sér og höfðu eftir það ávallt frumkvæðið og sigruðu að lokum 110-75. 

Hagyrðingur félagsins var á staðnum og hafði á orði:

Til Gindavíkur lá vor leið
lágum þar illa í valnum.
HK-liðið þar eftir Sæmundi beið
hva! er hann í Hvalnum!?

Nú er frí eina helgi, aldrei þessu vant og hafa því HK-menn góðan tíma til að sleikja sárin og safna liði fyrir næsta leik gegn Hvíta Riddaranum á heimavelli.

Áfram HK!!!

Mynd - Sæmundur á ögurstundu gerði upp á milli áhugamála!!!




Til baka

Á næstunni

Enginn atburður skráður

Könnun

Í hvaða sæti í riðlakeppninni lendir HK í vetur?

1. sæti


2. sæti


3. sæti


4. sæti


5. sæti


OZON-Vefumsjónarkerfið