Fréttir

22. nóvember 2006

HK karfa heldur áfram sigurgöngu sinni

HK vann Deigluna í skemmtilegum leik á laugardaginn var.  HK náði fljótt undirtökin í leiknum og leiddi leikinn í fyrri hálfleik.  Munaði þar miklum um 3 stiga stórskotahríð Skúla skyttu. Hann skorað i 6 stk. 3-stiga körfur í fyrri hálfleik takkfyrirtúkall.  Þegar líða tók á 3-ja leikhluta tóku Deiglumenn mikinn sprett og náðu að komst yfir.  Þeir voru ekki lengi með forystuna því snemma í 4 leikhluta var HK komið yfir aftur og leiddi leikinn með 2-4 stigum.  Deiglumenn náðu þó að jafna á síðustu sekúndu leiksins þannig að leikurinn fór í framlengingu.  HK ingar komu grimmir í framlenginguna og það var aldrei spurningin hvoru megin sigurinn lenti.  Lokastaðan var 79-75.

Hagyrðingurinn eini sanni var ekki á staðnum en hagsveiflan gengur í ættir og frænda hans varð að orð.

HK mætti á útivöll
Keppti þar við nokkra kalla
Heyrðist þar bæði hróp og köll
en HK rúllaði yfir alla

Fyrir rúmri viku síðan tóku hinsvegar HK menn á móti Hvítu riddurum í Digranesi.  Riddararnir mættu vel vopnum búnir og hugðust taka hrausta HK-inga í bakaríið á okkar heimavelli.  En það var eins og svo oft áður að enginn skyldi vanmeta styrk HK manna.  Skemmst er frá því að segja að HK sigraði 76-74 eftir að hafa verið undir í hálfleik 39-44.  Riddararnir börðust hetjulega en við vorum bara betri.

Hagyrðingur félagsins var með HK í anda og hafði á orði er úrslitin voru ljós:

Með alvæpni Hvítir riddarar
í Digranes í vígahug mættu
Hlupu á braut eins og kellingar
því HK menn þá alla grættu

Mynd: Skúli skytta fór hamförum á Deiglunni og setti svo marga þrista að menn greinir á um hvað þeir voru margir.




Til baka

Á næstunni

Enginn atburður skráður

Könnun

Í hvaða sæti í riðlakeppninni lendir HK í vetur?

1. sæti


2. sæti


3. sæti


4. sæti


5. sæti


OZON-Vefumsjónarkerfið