HK býður upp á byrjendablak haustið 2012 frá 1. september
Byrjendablak er ætlað þeim sem aldrei hafa stundað blak (eða langt er um liðið síðan blakbolti var snertur). Grunnatriði blakíþróttarinnar verða kynnt, svo sem hvernig á að taka á móti bolta, hvernig á að spila honum upp sem og gefa boltann yfir netið. Einnig verða reglur íþróttarinnar kynntar.
Tímarnir henta einnig þeim sem hafa einhverntíma leikið sér í blaki og langar að rifja upp réttu handtökin. Um áramót verður hver þátttakandi metinn og honum boðið að taka þátt í blakhópi við hæfi.
Æfingatímar; Laugardagar kl. 10.00 - 12.00
Fyrstu tvær æfingarnar eru án endurgjalds. Æfingagjöld frá september til desember 2012 eru 15 þúsund krónur.
Ekki er þörf á að skrá sig, áhugasamir mæta í Fagralund laugardaginn 1. september kl. 10.00
Byrjendablak fullorðinna 2012


Leikmenn og þjálfari 2012-2013