Meistaraflokkur ÍK 1979
Þriðja keppnisárið reyndist það erfiðasta í sögu meistaraflokks ÍK. Eftir jafntefli í rokleik í Garðinum í fyrsta leik urðu stigin ekki fleiri það sumarið. Leikirnir framan af voru þó flestir jafnir og tvísýnir en eftir því sem á leið dró úr kraftinum og stærri töp fóru að líta dagsins ljós. En þrátt fyrir alla ósigrana ber mönnum saman um að liðsandinn hafi sjaldan verið betri en þetta tímabil.
Úrslit leikja ÍK í 3. deildinni 1979 urðu sem hér segir. Þrátt fyrir að umsagnir væru um alla leikina í Dagblaðinu þetta árið var ekki greint frá markaskorurum ÍK nema í þremur leikjanna. Ef einhverjir búa yfir upplýsingum um þá, sendið þær á vs@mbl.is
| Dags. | Leikur | Markaskorarar ÍK |
| 02.6. | Víðir - ÍK 1-1 | ???? |
| 09.6. |
ÍK - Grótta 0-5 |
|
| 16.6. |
Grindavík - ÍK 2-0 |
|
| 23.6. |
ÍK - Grindavík 2-3 |
???? |
| 30.6. |
ÍK - Ármann 1-3 |
???? |
| 14.7. |
ÍK - Njarðvík 1-4 |
???? |
| 21.7. |
ÍK - Víðir 1-4 |
Smári Jónsson |
| 28.7. |
Grótta - ÍK 4-1 |
Ólafur Petersen |
| 11.8. |
Ármann - ÍK 3-0 |
|
| 18.8. |
ÍK - Stjarnan 0-6 |
|
| 25.8. |
Njarðvík - ÍK 6-1 |
Sjálfsmark |
| Stjarnan - ÍK 5-1 | ???? |
| Lokastaðan: | |||||||
| Röð | Lið | Leikir | Sigrar | Jafnt. | Töp |
Mörk |
Stig |
| 1. | Ármann | 12 | 9 | 3 | 0 | 29-6 | 21 |
| 2. | Njarðvík | 12 | 5 | 5 | 2 | 20-13 | 15 |
| 3. | Grindavík | 12 | 6 | 3 | 3 | 20-18 | 15 |
| 4. | Grótta | 12 | 5 | 3 | 4 | 26-23 | 13 |
| 5. | Víðir | 12 | 3 | 4 | 5 | 18-20 | 10 |
| 6. | Stjarnan | 12 | 3 | 3 | 6 | 22-18 | 9 |
| 7. | ÍK | 12 | 0 | 1 | 11 | 9-46 | 1 |
Bikarkeppni KSÍ:
Fyrsti heimaleikur ÍK í bikarkeppninni fór á sömu leið og útileikirnir tvö fyrstu árin. Grindvíkingar þurftu þó framlengingu til að knýja fram sigur í Kópavogi. Markaskorarana í þessum leik vantar.
| Dags. | Leikur | Markaskorarar ÍK |
| 30.5. | ÍK - Grindavík 2-4 | ???? |
Upplýsingar um leikmenn árið 1979 vantar.
| Nafn | Leikir | Mörk |
| EFTIRMINNILEGUR LEIKUR: Stjarnan - ÍK Þessi leikur er fyrst og fremst eftirminnilegur vegna þess að hann fór ekki fram, og ástæður þess voru raktar ítarlega í Dagblaðinu þann 10. júlí: "Þetta var í meira lagi sögulegur leikur ef leik skyldi kalla því hann fór aldrei fram. Bæði liðin voru mætt til leiks í Garðabæ en rétt áður en leikurinn átti að hefjast snaraði dómarinn, Ólafur Valgeirsson, sér inn í búningsherbergi ÍK-manna með miklum látum og heimtaði að sjá leikskýrslu. Var honum bent á að verið væri að skrifa hana. Hafði Ólafur engar vífilengjur heldur gekk að þeim sem var að skrifa skýrsluna og þreif af honum bókina, henti henni í gólfið og sparkaði út í horn með tilheyrandi blótsyrðum. Gekk hann síðan úr klefanum. Á slaginu fjögur flautaði hann liðin út á völl. ÍK-menn, sem voru hálf utan við sig eftir þessa heimsókn munu hafa dvalið í búningsklefanum 2-3 mínútur fram yfir kl. fjögur en héldu síðan út á völl. Reglur KSÍ kveða svo á um að lið hafi 10 mínútur framyfir auglýstan leiktíma til að koma til leiks. Ekki liðu meira en í mesta lagi 4 mínútur í þessu tilviki. ÍK-menn gengu síðan galvaskir út á völl en mættu þá Ólafi, þungum á brún, með boltann undir hendinni. Allt Stjörnuliðið gekk á eftir honum og reyndi að tala um fyrir honum en án árangurs. Kappinn hafði nefnilega flautað leikinn af á þeirri forsendu að ÍK væri ekki mætt til leiks. Upphófst nú hið mesta þref að sjálfsögðu en dómarinn lokaði sig inni í klefa sínum og talaði hvorki við kóng né prest. Við tækifæri skaust hann út úr húsinu en skildi leikskýrsluna eftir. Á henni stóð að hann hefði dæmt ÍK leikinn tapaðan þar sem liðið hafði ekki mætt til leiks. ÍK-menn vilja að sjálfsögðu ekki una þessum málalokum og hafa kært dómarann. Það er dálítið kostulegt að Ólafur skuli leyfa sér slíka framkomu því hann getur sjálfur ekki státað af glæsilegri mætingu í þeim leikjum sem hann hefur átt að dæma." Þess skal getið að leikurinn fór fram síðar um sumarið. |
||
Til baka
Miðvikudaginn 22.maí
19.15 Stjarnan - HK/Víkingur, Pepsi kv., knatt.
Miðvikudaginn 22.maí
20.00 Ýmir - Mídas, 4.deild ka, knatt.
Fimmtudaginn 23.maí
19.15 Hamar - HK, 2. deild ka., knatt.
Mánudaginn 27.maí
20.00 Elliði - Ýmir, 4.deild ka., knatt.
Þriðjudaginn 28.maí
19.15 HK/Víkingur - FH, Pepsi kv., knatt.
Miðvikudaginn 29.maí
19.15 Sindri - Ýmir, Bikar ka., knatt.

Leikmenn
Reykjavíkurmót 2010