Meistaraflokkur ÍK 1981
ÍK blandaði sér í fyrsta skipti í baráttu um sæti í úrslitakeppni 3. deildar og átti möguleika á efsta sætinu fram í lokaumferðina. Annað sætið var óvænt útkoma í sterkum riðli, og sá árangur reyndist mikilvægur veturinn á eftir. Þá var stofnuð 4. deild og aðeins tvö efstu liðin í hverjum riðli héldu sæti sínu í 3. deild, hin fóru í 4. deildina.
Úrslit leikja ÍK í 3. deildinni 1981 urðu sem hér segir:
| Dags. | Leikur | Markaskorarar ÍK |
| 23.5. | Grindavík - ÍK 5-1 | Jóhann Sævarsson |
| 31.5. |
ÍK - Grótta 2-1 |
Ólafur Petersen 2 |
| 06.6. | Ármann - ÍK 0-0 | |
| 20.6. |
ÍK - Óðinn 4-0 |
Óskar Guðmundsson, Jóhann Sævarsson, Kristján Hauksson 2 |
| 24.6. |
Hveragerði - ÍK 1-2 |
Ólafur Petersen, Kristján Hauksson |
| 29.7. |
ÍK - Aftureld. 2-1 |
Óskar Guðmundsson 2 |
| 04.7. |
ÍK - Grindavík 0-0 |
|
| 11.7. |
Grótta - ÍK 0-3 |
Ingvar Teitsson, Óskar Guðmundsson, Ólafur Petersen |
| 15.7. |
ÍK - Ármann 1-1 |
Hörður Harðarson |
| 25.7. |
Óðinn - ÍK 0-2 |
Víðir Sigurðsson, Kristján Hauksson |
| 29.7. |
ÍK - Hveragerði 4-0 |
Hörður Harðarson 2, Sigvaldi Einarsson, Ingvar Teitsson |
| 08.8. |
Aftureld. - ÍK 5-0 |
| Lokastaðan: | |||||||
| Röð | Lið | Leikir | Sigrar | Jafnt. | Töp |
Mörk |
Stig |
| 1. | Grindavík | 12 | 9 | 2 | 1 | 30-11 | 20 |
| 2. | ÍK | 12 | 7 | 3 | 2 | 21-14 | 17 |
| 3. | Afturelding | 12 | 7 | 2 | 3 | 33-18 | 16 |
| 4. | Ármann | 12 | 6 | 4 | 2 | 18-9 | 16 |
| 5. | Grótta | 12 | 3 | 2 | 7 | 15-32 | 8 |
| 6. | Hveragerði | 12 | 2 | 3 | 7 | 14-23 | 7 |
| 7. | Óðinn | 12 | 0 | 0 | 12 | 7-31 | 0 |
|
Bikarkeppni KSÍ |
||
| 10.6. |
Víðir - ÍK 3-0 |
Leikmenn á Íslandsmóti og bikarkeppni KSÍ 1981:
| Nafn | Leikir | Mörk |
| Arinbjörn Clausen | 1 | |
| Guðbjörn Gunnarsson | 4 | |
| Guðmundur Halldórss. | 12 | |
| Gunnar Óskarsson | 5 | |
| Hörður Harðarson | 4 | 3 |
| Ingvar Teitsson | 11 | 2 |
| Jóhann Sævarsson | 10 | 2 |
| Jón Óttarr Karlsson | 3 | |
| Kristinn Guðmundss | 11 | |
| Kristján Hauksson | 9 | 4 |
| Markús Einarsson | 11 | |
| Oddur Friðriksson | 1 | |
| Ólafur Th. Ólafsson | 6 | |
| Ólafur Petersen | 11 | 4 |
| Óskar Guðmundsson | 12 | 4 |
| Ragnar Bogi Petersen | 13 | |
| Sigurður Sigurðsson | 13 | |
| Sigvaldi Einarsson | 10 | 1 |
| Svavar Halldórsson | 4 | |
| Víðir Sigurðsson | 13 | 1 |
Þjálfari: Einar Stefán Árnason.
Fyrirliði: Víðir Sigurðsson.
| EFTIRMINNILEGUR LEIKUR: ÍK - Afturelding 2-1 Þetta var einn af mestu baráttuleikjum sumarsins, enda alltaf mikið um að vera þegar þessi lið mættust. Afturelding var með hörkulið sem hafði hvað eftir annað verið nálægt því að vinna sér sæti í 2. deild. Tvö glæsileg mörk Óskars Guðmundssonar, fisksala í Sæbjörgu, réðu úrslitum og það síðara gleymist seint þeim sem það sáu. Einföld og falleg skyndisókn, Kristinn "Gúndi" Guðmundsson fékk boltann frá Ólafi Petersen, óð upp hægri kantinn og átti hárnákvæma fyrirgjöf á Óskar sem kom á fleygiferð upp völlinn og skallaði frá vítateigshorni vinstra megin, efst í markvinkilinn fjær! Önnur eins tilþrif hafa sennilega aldrei sést fyrr eða síðar á gamla góða Smárahvammsvellinum. ÍK-ingurinn Einar "Lambi" Sigurðsson var línuvörður og hann gleymdi sér svo við að sjá þetta magnaða mark að hann veifaði flaggi sínu í gríð og erg, sem betur fer á hinum vallarhelmingnum. Dómarinn leit undrandi á Einar sem lét flaggið síga, skömmustulegur á svip. |
Afturelding - ÍK 5-0
Eftir gott gengi og 10 leiki í röð án taps gat ÍK komist í úrslit 3.deildar með því að vinna Aftureldingu, og Grindavík tapaði á meðan fyrir Ármanni. Það gekk ekki beint eftir, heldur gekk allt á afturfótunum á Tungubökkum og Afturelding vann stórsigur. Lánleysi ÍK-inga var slíkt að þeir skoruðu ekki einu sinni úr fjórtekinni vítaspyrnu. Víðir Sigurðsson tók fyrstu þrjár, fyrst varði markvörðurinn en hafði hreyft sig. Spyrnan endurtekin, Víðir skoraði, en dómarinn var ekki búinn að flauta! Þriðja tilraun - yfir markið, en markvörðurinn hreyfði sig aftur. Reynt í fjórða sinn en þá kom Óskar Guðmundsson til skjalanna og skaut beint á markvörðinn! Þar með var útséð um að ÍK myndi ekki skora þann daginn.
Til baka
Laugardaginn 18.maí
16.00 HK/Víkingur - Þór/KA, Pepsi kv., knatt
Miðvikudaginn 22.maí
19.15 Stjarnan - HK/Víkingur, Pepsi kv., knatt.
Miðvikudaginn 22.maí
20.00 Ýmir - Mídas, 4.deild ka, knatt.
Fimmtudaginn 23.maí
19.15 Hamar - HK, 2. deild ka., knatt.
Mánudaginn 27.maí
20.00 Elliði - Ýmir, 4.deild ka., knatt.
Þriðjudaginn 28.maí
19.15 HK/Víkingur - FH, Pepsi kv., knatt.

Leikmenn
Reykjavíkurmót 2010