1985

Meistaraflokkur ÍK 1985

Allt annar bragur var á liði ÍK en árið áður en fjöldi jafntefla kom í veg fyrir að það yrði ofar en raunin varð. Fyrsti sigurinn vannst ekki fyrr en í sjöunda leik en eftir það var ÍK á góðri siglingu. Fjórða sæti í SV-riðli var besti árangurinn frá upphafi.

EFTIRMINNILEGUR LEIKUR:
ÍK - Reynir S. 6-3

ÍK-ingar voru komnir á gott skrið seinni hluta sumars og tóku þá á móti Reyni úr Sandgerði á Kópavogsvellinum. Lengi vel leit útfyrir að gestirnir, sem voru ofar í deildinni, myndu fara með sigur af hólmi því þeir voru yfir, 3-1, þegar aðeins 20 mínútur voru til leiksloka. En þá hrökk lið ÍK heldur betur í gang og skoraði fimm mörk á lokakaflanum. Þjálfarinn, Guðjón Guðmundsson, fór fyrir sínum mönnum og gerði þrennu, hinn 17 ára gamli Jón Hersir Elíasson skoraði tvö mörk og aðalmarkaskorarinn þetta sumar, leigubílstjórinn knái Þórir Gíslason, komst líka á blað.

Úrslit leikja ÍK í 3. deildinni 1985 urðu sem hér segir:

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
19.5. Grindavík - ÍK 2-1 Gunnar Þ. Guðmundsson
24.5.

Ármann - ÍK 2-1

Guðjón Guðmundsson
31.5. ÍK - Stjarnan 0-0
07.6.

Selfoss - ÍK 1-1

Þórir Gíslason
15.6.

ÍK - HV 2-2

Björn Björnsson 2
22.6.

Reynir S. - ÍK 1-1

Jón Hersir Elíasson
30.6.

ÍK - Víkingur Ó 4-3

Gunnar Þ. Guðmundsson, Reynir Björnsson, Guðjón Guðmundsson, Ólafur Petersen
05.7.

ÍK - Grindavík 1-1

Guðjón Guðmundsson
13.7.

ÍK - Ármann 0-0

20.7.

Stjarnan - ÍK 0-3

Þórir Gíslason 2, Gunnar Þ. Guðmundsson
27.7.

ÍK - Selfoss 1-4

Þórir Gíslason
11.8.

HV - ÍK 3-4

Þórir Gíslason 2, Hörður Sigurðarson, 
Jón Hersir Elíasson
17.8.

ÍK - Reynir S. 6-3

Guðjón Guðmundsson 3, Jón Hersir Elíasson 2, Þórir Gíslason
24.8.

Víkingur Ó - ÍK 2-1

Þórir Gíslason
Lokastaðan:
Röð Lið Leikir Sigrar Jafnt. Töp

Mörk

Stig
1. Selfoss 14 10 4 0 37-11 34
2. Grindavík 14 6 5 3 24-17 23
3. Reynir S. 14 6 4 4 30-20 22
4. ÍK 14 4 6 4 26-24 18
5. Ármann 14 4 5 5 19-17 17
6. Stjarnan 14 4 4 6 12-24 16
7. HV 14 4 2 8 20-26 14
8. Víkingur Ó. 14 2 2 10 12-41   8

Bikarkeppni KSÍ:

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
22.5. ÍK - Víkverji 3-2 Ólafur Petersen 2, Guðjón Guðmundsson
03.6.

ÍK - Grótta 6-7 (2-2)

Gunnar Þ. Guðmundsson, Reynir Björnsson
Grótta sigraði 5-4 í vítaspyrnukeppni.

Stóra bikarkeppnin:

ÍK vann keppnina í fyrsta skipti og lagði 1. deildarlið Víðis í hörkuleik á Vallargerðisvelli. Það var fyrsti sigurleikur ÍK gegn liði úr efstu deild.

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
Afturelding - ÍK 0-0

ÍK - Víðir 3-1

Björn Björnsson 2, Guðjón Guðmundsson
ÍK - Selfoss 3-1 Björn Björnsson, Ólafur Petersen, Þórir Gíslason

ÍK sigraði í sínum riðli í 3. deildarkeppni Íslandsmótsins innanhúss og vann sér sæti í 2. deild.
Úrslit leikjanna: ÍK-Stjarnan 7-6, ÍK-Valur Rf. 3-2, ÍK-Magni 13-4.

Leikmenn í mótsleikjum, Íslandsmóti, Bikarkeppni KSÍ og Stóru bikarkeppni:

Nafn Leikir Mörk
Björn Björnsson 19 5
Gestur Pálsson 7
Guðjón Guðmundsson 19 8
Guðjón Sigurðsson 18
Gunnar Már Gíslason 1
Gunnar Þ. Guðmundss 14 4
Hörður Ingi Jóhannsson 18
Hörður Sigurðarson 17 1
Jón Hersir Elíasson 12 4
Magnús Guðjónsson 15
Ólafur Petersen 10 4
Ragnar Bogi Petersen 13
Reynir Björnsson 19 2
Sigurður Eyþórsson 5
Sigurjón Friðriksson 13
Sigvaldi Einarsson 1
Úlfar Óttarsson 8
Víðir Sigurðsson 14
Vilhjálmur Sigurðsson 3
Þórhallur Gunnarsson 1
Þórir Bergsson 2
Þórir Gíslason 17 9

Þjálfari: Guðjón Guðmundsson.
Aðstoðarþjálfari: Sigurbjartur Guðmundsson.
Fyrirliði: Víðir Sigurðsson.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið