1987

Meistaraflokkur ÍK 1987

ÍK jafnaði sinn besta árangur, endaði í 3. sæti Suðvesturriðils 3. deildar, og átti að mörgu leyti ágætt tímabil en náði ekki að fylgja sterkum liðum Fylkis og Stjörnunnar eftir í toppslagnum. ÍK vann sinn stærsta sigur fyrr og síðar í meistaraflokki, 15-0 gegn Skallagrími á Kópavogsvellinum. Steindór Elíson skoraði 7 markanna, sem einnig er félagsmet, og hann varð markakóngur allrar deildakeppninnar með 25 mörk.

EFTIRMINNILEGUR LEIKUR:
ÍK - Fylkir 1-2

Um þennan leik er talað enn þann dag í dag sem einn þann sögulegasta sem fram hefur farið á Kópavogsvellinum og atburðarásin í honum var t.d. rakin á heimasíðu Fylkis haustið 2001. Leikinn dæmdi enskur "gestadómari" sem að eigin sögn var öllu vanur úr heimalandi sínu en í ljós kom að hann var ekki sérlega vel að sér í fræðunum. Allt fór úr böndunum þegar Fylkir skoraði sigurmark sitt í leiknum. Baldur Bjarnason, sóknarmaður Fylkis og síðar landsliðsmaður, sló boltann nefnilega í markið með hendi á all áberandi hátt. Sá enski dæmdi mark en línuvörður veifaði og benti honum á að um hendi hafi verið að ræða. Fylkismenn þyrptust þá að dómaranum og töldu honum trú um að fyrst hann væri búinn að dæma markið gilt mætti hann ekki breyta dómnum. Þessu trúði Englendingurinn og benti á miðjuna, en þá fyrst varð allt vitlaust, ÍK-ingar mótmæltu afar kröftuglega, rólegustu menn í þeirra röðum töpuðu sér gjörsamlega og því var með naumindum afstýrt að liðið gengi af velli í mótmælaskyni. 

Úrslit leikja ÍK í 3. deildinni 1987 urðu sem hér segir:

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
23.5. Stjarnan - ÍK 3-1 Steindór Elíson
31.5.

ÍK - Reynir S. 4-1

Steindór Elíson, Jón Hersir Elíasson, Hörður
Sigurðarson, Reynir Björnsson
06.6. Skallagrímur - ÍK 0-2 Hörður Sigurðarson, Steindór Elíson
16.6.

Fylkir - ÍK 3-1

Hörður Sigurðarson
20.6.

ÍK - Afturelding 3-1

Steindór Elíson 3
24.6.

Njarðvík - ÍK 1-3

Steindór Elíson 2, Jón Hersir Elíasson
27.6.

ÍK - Haukar 2-1

Steindór Elíson 2
03.7.

Grindavík - ÍK 2-3

Jón Hersir Elíasson 2, Reynir Björnsson
07.7.

ÍK - Leiknir R. 0-0

17.7.

ÍK - Stjarnan 1-3

Steindór Elíson
25.7.

Reynir S. - ÍK 3-2

Steindór Elíson 2
08.8.

ÍK - Fylkir 1-2

Steindór Elíson
12.8.

ÍK - Skallagr. 15-0

Steindór Elíson 7, Reynir Björnsson 2, Björn
Björnsson 2, Jón Hersir Elíasson 2, Friðrik Friðriksson, Skúli Þórisson
15.8.

Afturelding - ÍK 3-1

Jón Hersir Elíasson
18.8.

ÍK - Njarðvík 2-1

Steindór Elísson, Jón Hersir Elíasson
21.8.

Haukar - ÍK 1-1

Jón Hersir Elíasson
29.8.

ÍK - Grindavík 0-0

06.9.

Leiknir R. - ÍK 0-4

Steindór Elíson 3, Jón Hersir Elíasson
Lokastaðan:
Röð Lið Leikir Sigrar Jafnt. Töp

Mörk

Stig
1. Fylkir 18 16 2 0 51-9 50
2. Stjarnan 18 14 0 4 51-20 42
3. ÍK 18 9 3 6 46-25 30
4. Grindavík 18 8 4 6 48-25 28
5. Reynir S. 18 9 1 8 35-31 28
6. Afturelding 18 8 1 9 36-40 25
7. Leiknir R. 18 5 5 8 28-37 20
8. Njarðvík 18 5 3 10 22-32 18
9. Haukar 18 5 2 11 25-36 17
10. Skallagrímur 18 0 1 17 10-97   1

Bikarkeppni KSÍ:

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
28.5. ÍR - ÍK 4-1 Hörður Sigurðarson

Alison-bikarinn:

Stofnað var til keppni milli Kópavogsliðanna þriggja í fyrsta skipti og leikið um bikar sem fyrirtæki Reinhardts Reinhardtssonar, Saumastofan Alís, gaf. ÍK lék tvo hörkuleiki við 2. deildarlið Breiðabliks og dugði jafntefli í þeim seinni en Blikar knúðu fram 1-0 sigur og unnu þar með mótið.

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
14.3. ÍK - Augnablik 10-0 Reynir Björnsson 5, Gunnar Þ. Guðmundsson 2,
Vignir Baldursson, Jón Hersir Elíasson, Steindór Elíson
28.3. ÍK - Breiðablik 1-1 Steindór Elíson
04.4. ÍK - Augnablik 5-1 Jón Hersir Elíasson, Sigurður Eyþórsson, Gunnar Þ.
Guðmundsson, Steindór Elíson, Björn Björnsson
09.4. Breiðablik - ÍK 1-0

Stóra bikarkeppnin:

ÍK vann 1. deildarlið Víðis og 2. deildarlið Selfoss í Stóru bikarkeppninni en tapaði fyrir liðunum úr 3. og 4. deild.

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
11.4. Afturelding - ÍK 5-1 Björn Björnsson
18.4. ÍK - Grindavík 0-4
24.4. ÍK - Víðir 4-2 Sigurjón Sigurðsson, Þórhallur Gunnarsson, Björn
Björnsson, Sigurður Eyþórsson
28.4. Grótta - ÍK 4-1 Steindór Elíson
05.5. ÍK - Selfoss 4-1 Steindór Elíson 3, Friðrik Friðriksson

Landsmót UMFÍ:

ÍK lék fyrir hönd UMSK á Landsmótinu á Húsavík og vann þar glæsilegan sigur. Steindór Elíson skoraði öll mörkin í 3-0 sigri á Njarðvíkingum í úrslitaleik.

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
10.7. ÍK - UMSE 5-4 Reynir Björnsson 2, Gunnar Guðmundsson 2, Sigurður
Eyþórsson
10.7. ÍK - HSK 2-0 Reynir Björnsson, Gunnar Guðmundsson
11.7. ÍK - UMFK 4-0 Reynir Björnsson, Vignir Baldursson, Björn Björnsson,
Gunnar Guðmundsson
12.7. ÍK - Njarðvík 3-0 Steindór Elíson 3

Eftirtaldir léku mótsleikina 1987, í deild, bikar, stóra bikar, Alison-bikar og Landsmóti UMFÍ:

Nafn Leikir Mörk
Ásmundur Guðmundsson 22
Bárður Tryggvason 22
Björn Björnsson 29 6
Eyjólfur Þórðarson 26
Friðrik Friðriksson 9 2
Garðar Agnarsson 1
Guðjón Sigurðsson 16
Gunnar Guðmundsson 16 4
Gunnar Þ. Guðmundsson 9 3
Hörður Sigurðarson 14 4
Jón Hersir Elíasson 24 12
Jón Ingimarsson 4
Kristinn Már Emilsson 21
Magni Steindórsson 7
Magnús Guðjónsson 11
Óskar Elvar Óskarsson 7
Ragnar Bogi Petersen 3
Reynir Björnsson 25 13
Sigurður Eyþórsson 26 3
Sigurjón Friðriksson 10
Sigurjón Sigurðsson 6 1
Skúli Þórisson 8 1
Steindór Elíson 28 35
Úlfar Óttarsson 31
Valdimar Sigurðsson 6
Vignir Baldursson 31 2
Þorkell Ágústsson 6
Þórhallur Gunnarsson 6 1
Þráinn Þráinsson 13

Þjálfari: Vignir Baldursson
Fyrirliði: Björn Björnsson

Eyjólfur Þórðarson, markvörður, var kjörinn leikmaður ársins.
Jón Hersir Elíasson og Friðrik Friðriksson voru heiðraðir fyrir framfarir.
Jón Hersir Elíasson var heiðraður fyrir fallegasta markið.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið