1991

Meistaraflokkur ÍK 1991

Slæm byrjun kom öðru fremur í veg fyrir að ÍK næði að vinna sér sæti í 2. deild en liðið vann aðeins einn af fyrstu fimm leikjunum. Of mörg töpuð stig gegn neðstu liðunum vógu líka þungt, og ÍK fékk t.d. aðeins eitt stig úr heimsóknum sínum til Árskógsstrandar, Siglufjarðar og Grenivíkur. Litlu munaði að góður lokasprettur, þar sem ÍK skoraði 32 mörk í síðustu 6 leikjunum, fleytti liðinu alla leið en tap í skrautlegum leik á Siglufirði í næstsíðustu umferðinni gerði drauminn að engu.

EFTIRMINNILEGUR LEIKUR:
ÍK - Valur 1-2

ÍK náði sínum besta árangri í bikarkeppni KSÍ þetta sumarið. Eftir sigra á Ólafsvíkingum og Stokkseyringum lögðu ÍK-ingar 2. deildarlið Hauka á útivelli í síðasta leik undankeppninnar og mættu bikarmeisturum Vals í 16-liða úrslitunum. Sá leikur fór fram á Smárahvammsvelli þar sem Kópavogsvöllur var lokaður vegna viðgerðar. Mikið var fjallað um hann í fjölmiðlum, meistaraflokkslið ÍK hefur sennilega aldrei verið jafn mikið í sviðsljósinu og í kringum þessa viðureign,  og m.a. vakti mikla athygli sú búningsaðstaða sem Valsmönnum var boðið uppá í hálfleik en það var strætisvagn frá Kópavogsbæ sem komið var fyrir við völlinn!
ÍK komst yfir strax á 4. mínútu þegar Úlfar Óttarsson stakk sér framhjá landsliðsmiðverðinum Sævari Jónssyni við miðju vallarins, brunaði einn uppað Valsmarkinu og skoraði hjá landsliðsmarkverðinum Bjarna Sigurðssyni. ÍK hélt forystunni í rúman klukkutíma og fékk gott færi til að komast í 2-0 áður en Valsmenn skoruðu tvívegis á lokakaflanum og knúðu fram sigur. Þeir héldu áfram sigurgöngunni og urðu bikarmeistarar annað árið í röð, en óhætt er að segja að ÍK-ingar hafi fallið úr keppni með sæmd.

Úrslit leikja ÍK í 3. deildinni 1991 urðu sem hér segir:

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
25.5. ÍK - Þróttur N. 1-1 Ómar Jóhannsson
01.6.

ÍK - BÍ 1-1

Reynir Björnsson
14.6.

Dalvík - ÍK 4-0

22.6.

ÍK - Leiftur 2-1

Ólafur Már Sævarsson, Reynir Björnsson
29.6.

Reynir Á. - ÍK 2-1

Þröstur Gunnarsson
03.7. ÍK - Skallagr. 4-1 Ólafur Már Sævarsson 2, Úlfar Óttarsson,
Þröstur Gunnarsson
06.7.

Magni - ÍK 3-3

Þröstur Gunnarsson, Helgi Kolviðsson,
Stefán Guðmundsson
13.7.

ÍK - KS 1-1

Reynir Björnsson
20.7.

Völsungur - ÍK 1-3

Halldór Gíslason, Stefán Guðmundsson,
Helgi Kolviðsson
23.7.

Þróttur N. - ÍK 5-2

Hallsteinn Traustason, Úlfar Óttarsson
27.7.

BÍ - ÍK 2-1

Úlfar Óttarsson
01.8.

ÍK - Dalvík 1-1

Hörður Már Magnússon
10.8.

Leiftur - ÍK 0-2

Úlfar Óttarsson, Ómar Jóhannsson
13.8.

ÍK - Reynir Á. 11-0

Hörður Már Magnússon 3, Ómar Jóhannsson 2, Úlfar Óttarsson 2, Reynir Björnsson 2,
Ólafur Már Sævarsson, Leifur Garðarsson
17.8.

Skallagr. - ÍK 3-4

Hörður Már Magnússon, Leifur Garðarsson,
Þröstur Gunnarsson, Úlfar Óttarsson
24.8.

ÍK - Magni 7-0

Ómar Jóhannsson 2, Hörður Már Magnússon 2, Úlfar Óttarsson, Reynir Björnsson,
Helgi Kolviðsson
31.8.

KS - ÍK 5-3

Hörður Már Magnússon 2, Ómar Jóhannsson
07.9.

ÍK - Völsungur 5-0

Leifur Garðarsson 2, Heiðar Heiðarsson,
Helgi Kolviðsson, Hlífar Rúnarsson
Lokastaðan:
Röð Lið Leikir Sigrar Jafnt. Töp

Mörk

Stig
1. Leiftur 18 11 3 4 44-20 36
2. 18 9 4 5 35-24 31
3. ÍK 18 8 5 5 52-31 29
4. Dalvík 18 8 3 7 39-32 27
5. Skallagrímur 18 7 6 5 42-43 27
6. Völsungur 18 7 5 6 19-26 26
7. Þróttur N. 18 6 5 7 39-33 23
8. KS 18 5 5 8 26-28 20
9. Magni 18 5 3 10 37-55 18
10. Reynir Á. 18 3 3 12 23-64 12

Bikarkeppni KSÍ:

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
28.5. ÍK - Víkingur Ó 2-1 Hörður Már Magnússon, Helgi Kolviðsson
08.6. Stokkseyri - ÍK 1-9 Helgi Kolviðsson 3, Hörður Már Magnússon 2, Reynir Björnsson 2, Stefán Guðmundsson, Þröstur Gunnarsson
25.6. Haukar - ÍK 0-1 Hörður Már Magnússon
09.7. ÍK - Valur 1-2 Úlfar Óttarsson

Stóra bikarkeppnin:

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
06.4. Grótta - ÍK 1-1 Stefán Guðmundsson
20.4. ÍK - Grindavík 0-1
01.5. ÍK - Njarðvík 5-1 Hallsteinn Traustason 2, Helgi Kolviðsson 2, Reynir Björnsson
04.5. Reynir S. - ÍK 4-2 Leifur Garðarsson, Helgi Kolviðsson
14.5. Aftureld. - ÍK 0-2 Ólafur Már Sævarsson 2

Alison-bikarinn:

Ekki var mikill munur á Kópavogsliðunum þetta árið frekar en þau næstu á undan. Blikarnir náðu að koma fram hefndum frá árinu áður og unnu nauman sigur á nýja sandgrasvellinum í Kópavogsdal.

Dags. Leikur Markaskorarar ÍK
11.5. Breiðablik - ÍK 1-0

Íslandsmótið innanhúss:

ÍK-ingar sýndu enn og aftur styrk sinn í innanhússknattspyrnunni og voru hársbreidd frá því að komast í fjögurra liða úrslit mótsins eftir að hafa sigrað bæði Fram og Keflavík í riðlakeppninni, en tapað fyrir Breiðabliki sem varð samt neðst í riðlinum og féll í 2. deild. ÍK mætti ÍBV í 8-liða úrslitunum og var með undirtökin lengi vel en beið að lokum lægri hlut, 6-5, eftir framlengingu. ÍBV tapaði síðan gegn Fram í úrslitaleik mótsins og í annað skipti á þremur árum vann ÍK því sigur á því liði sem að lokum stóð uppi sem Íslandsmeistari innanhúss.

Eftirtaldir leikmenn léku mótsleiki ÍK 1991, í deild, bikar, stóra bikar og Alison-bikar:
.

Nafn Leikir Mörk
Friðrik Magnússon 10
Guðjón Björnsson 3
Gunnar Leifsson 13
Gústav Alfreðsson 5
Gylfi Rútsson 4
Halldór Gíslason 10 1
Hallsteinn Traustason 10 3
Heiðar Heiðarsson 6 1
Helgi Hilmarsson 6
Helgi Kolviðsson 26 11
Hlífar Rúnarsson 2 1
Hörður Már Magnússon 25 13
Jóhann H. Ólafsson 6
Kristinn Jakobsson 5
Leifur Garðarsson 15 5
Magnús Björnsson 1
Ólafur Már Sævarsson 24 6
Ómar Jóhannsson 22 7
Ragnar Bogi Petersen 26
Reynir Björnsson 26 9
Rúnar Höskuldsson 19
Sigurjón Friðriksson 4
Skúli Þórisson 7
Stefán Guðmundsson 21 4
Steinar Aðalbjörnsson 6
Sævar Sævarsson 1
Úlfar Óttarsson 19 9
Þráinn Þráinsson 4
Þröstur Gunnarsson 24 5

Þjálfari: Helgi Ragnarsson
Fyrirliði: Ragnar Bogi Petersen

Þetta reyndist vera síðasta keppnisár ÍK, þó engan renndi grun í það í mótslok 1991. Félagið hætti starfsemi sinni í lok nóvember, í kjölfar þess að Ríkisútvarpið krafðist gjaldþrotaskipta vegna viðskiptaskuldar og Kópavogsbær sýndi ekki lit í að koma félaginu til hjálpar fyrr en of seint. Allir flokkar ÍK héldu viðstöðulaust áfram æfingum og keppni undir merkjum HK og stofnuð var knattspyrnudeild hjá HK í janúar 1992. Þar heldur sagan áfram og hún er rakin í sérstökum
sögukafla hér á HK-vefnum, sem og á síðu meistaraflokks karla þar sem finna má úrslit allra leikja og fleira í þeim dúr.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið