27. apríl 2012
HK mætir FH í úrslitum N1 deildar karla
Þá er það orðið ljóst að mótherji HK í úrslitum N1 deildar karla verður FH eftir að FH sigraði Akureyri 3-1.
Eins og flestir vita þá sló HK Hauka út í undanúrslitum með glæsilegum hætti, 3-0, og er þar með komið í úrslitaeinvígið í fyrsta skipti.
Það má búast við hörku viðureign í úrslitum en leikir HK og FH í vetur hafa verið hörku spennandi og fjörugir. FH vann einn leik og tveir enduðu jafntefli.
13. Okt 2011: HK 30 - 30 FH
8. Des 2012: FH 25 - 23 HK
23. Mars 2012: FH 24 - 24 HK
FH er með mjög sterkt lið en liðið er núverandi Íslandsmeistari eftir sigur í úrslitarimmu í fyrra gegn Akureyri en Akureyringar slógu einmitt HK út úr undanúrslitunum í hörkuoddaleik fyrir norðan.
FHingar eru með sterka menn í öllum stöðum, góða breidd og öfluga markvörslu.
Markahæstu leikmenn liðanna í deildinni í vetur:
HK
Bjarki Már Elísson: 144 mörk
Ólafur Bjarki Ragnarsson: 115 mörk
Atli Ævar Ingólfsson: 108 mörk
Tandri Már Konráðsson: 66 mörk
FH
Ólafur Gústafsson: 112 mörk
Örn Ingi Bjarkason: 69 mörk
Hjalti Þór Pálmason: 66 mörk
Andri Berg Haraldsson: 53 mörk
Úrslitaeinvígið hefst Þriðjudaginn 1. Maí í Kaplakrika kl. 15:45 og nú þurfa HKingar að halda áfram þessari góðu mætingu sem var í undanúrslitum og styðja vel við bakið á strákunum, það þurfa allir að leggja sitt af mörkum við að landa fyrsta Íslandsmeistaratitli HK í handknattleik.
ÁFRAM HK.....AÐ EILÍFU !!!
Mynd: Strákarnir fagna sigrinum gegn Haukum

Um Ákamótið
Þjálfarar og foreldraráð