Krakkablak hefur allt
- Það er skemmtilegt
- Allir geta verið með
- Það er áskorun fyrir alla - styrkleikastig fyrir alla
- Maður er alltaf á hreyfingu
- Rétt þróun í hreyfiþroska barnsins
- Erfiðleikagráða tækniæfinga fer stighækkandi
- Það er gaman og þú svitnar
Starf deildarinnar hefur verið kröftugt undanfarin ár yfir vetrartímann
og með tilkomu strandblaksins hefur blakið orðið að heilsárs íþrótt. Í vetur verður ekkert slakað á og býður deildin upp á fjölbreytt og metnaðarfullt starf hjá yngri kynslóðinni. Krakkablakið verður á sínum stað og má með sanni segja að það sé hinn fullkomni blakleikur fyrir 6 til 12 ára krakka. Krakkablak felur í sér meiri virkni hjá börnunum og allir fá að vera með í leik sem tekur mið af hreyfifærni leikmanna og þróun í getu. Því skiptir engu máli hvort þú ert nýbyrjaður að æfa eða hefur æft, því allir geta spilað krakkablak.
Blakdeild HK mun bjóða upp á krakkablak í Kópavogsskóla, Fagralundi og Kórnum. Æfingar hefjast skv. töflu mánudaginn 3.september 2012. Sjá nánar í æfingatöflu .

Leikmenn og þjálfari 2012-2013