Foreldrar

Nokkur heilræði til foreldra:

Hvetjið börnin til þátttöku
    - ekki þvinga þau, ánægja þeirra og áhugi er það sem máli skiptir.

Mætið bæði á leiki og á æfingar
    - það hvetur og uppörvar börnin að finna fyrir áhuga ykkar.

Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans
    - ekki reyna að hafa áhrif á hann meðan á leik eða æfingu stendur og látið hann um þjálfunina og     leikstjórnunina. Ekki hrópa og kalla á ykkar börn á æfingum, það truflar einbeitingu þeirra og gerir      þau taugaóstyrk.

Hvetjið liðið í heild
    - ekki bara ykkar börn.

Látið aðeins jákvæð og hvetjandi orð frá ykkur fara á meðan leikur stendur
    - þetta er bara leikur og ánægjan yfir því að taka þátt er númer eitt.

Hafið hvatninguna einfalda og almenna
    - ekki reyna að fjarstýra börnunum frá hliðarlínunni, það ruglar þau bara.

Stuðlið að jákvæðum samskiptum við foreldra frá öðrum félögum
    - rígur og metingur eiga ekki heima á þessum vettvangi.

Sýnið ekki mótherjum barnanna ykkar neikvætt viðhorf
    - gagnkvæm virðing og kurteisi er hinn sanni íþróttaandi.

Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs
    - ekki gagnrýna þegar illa gengur. Hvetjið þau og uppörvið eftir tapleiki og klappið fyrir þeim þó leikurinn hafi ekki unnist.

Keppnisdagur er alltaf hátíðisdagur
    - sama hvernig leikurinn fer, látum óhagstæð úrslit ekki spilla fyrir því.

Lítið á dómarann sem leiðbeinanda barnanna
    - ekki gagnrýna ákvarðanir hans.

Spyrjið hvort leikurinn hafi verið skemmtilegur eða spennandi
    - úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.

Sýnið starfi félagsins virðingu
    - verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um starfsemina, þar er ykkar vettvangur.

Athugið hvort þið getið orðið að liði á einhvern hátt
    - það eru foreldrar sem sjá um alla starfsemina í yngri flokkunum og þeir gætu þurft hjálparhönd  -  margar hendur gera verkið auðvelt.

Gerið ykkur grein fyrir því að það eru börnin ykkar sem eru að spila fótbolta
    - ekki þið sjálf!




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið