Undirbúningur móta

Almennt um stærri mót sem flokkarnir fara á


Stærri mótin sem flokkarnir fara á hafa verið Lottómótið á Akranesi (7.flokkur karla), Shellmótið í Eyjum ( 6.flokkur karla ) , Essómótið á Akureyri(5.flokkur karla), Rey-cup eða utanlandsferð (3. og 4.flokkur karla).

Það er ýmislegt sem þessi mót eiga sameiginlegt.

1. Það þarf að skipa foreldra í mótsnefndir sem sjá um undirbúning mótaferðanna. Algengur fjöldi í þessum mótanefndum hafa verið 3-7 (fer eftir stærð og umfangi). Flokksráðsmenn þurfa ekki að sitja í þessum nefndum enda er nauðsynlegt að dreifa vinnu við umsjón flokkana á sem flesta aðila. Mótanefnd og flokksráð verða þó að hafa gott samráð sín á milli.

2. Mikilvægt er að tryggja að fararstjórn sé almennilega mönnuð. Fararstjórar hugsa um börnin allan sólarhringinn á meðan á mótunum stendur og er það heilmikil vinna. Í yngri flokkunum hafa yfirleitt verið 2 fararstjórar á lið (7.-5.flokkur) .

Þar sem vinna fararstjóra er mikil er nauðsynlegt að sjá til þess að þeir fái eitt fríkvöld á meðan á mótinu stendur ( á við lengri mótin). Sjá þarf til þess að foreldrar sem eru á staðnum leysi fararstjórana af. Það þarf að vera búið að ganga frá þessu áður en komið er á mótið.

Mótanefndin sér um að finna fararstjóra og það þarf að gera í tíma.

Finna þarf einn yfirfararstjóra sem kemur til með að mæta á fundi á meðan á mótinu stendur og hefur yfirumsjón með fararstjórninni.

3. Skipa þarf í matarnefnd. Á sumum þessara móta er ekki innifalinn hádegismatur og ekki kaffi. Starf matarnefndar felst í því að ákveða hvað eigi að borða í hádeginu og yfir daginn og sjá um innkaup. Matarnefndin sér einnig um að skipa foreldra sem eru á staðnum í að skiptast á að sjá um hádegismatinn og einnig að smyrja nesti fyrir daginn.

Fararstjórar sjá síðan um að útdeila nestinu yfir daginn og gefa keppendum hressingu á kvöldin.

Yfirleitt kemur hver keppandi með kex eða kökubox sem sett er í púkk. Þetta er síðan notað í kvöldhressingunni.

Mótanefndin sér um að skipuð sé matarnefnd.

4. Sundferðir. Yfirleitt er boðið uppá sundferðir í tengslum við mótin. Foreldrar á staðnum þurfa að skiptast á að fara með í sundferðirnar. Fararstjóar ættu ekki að þurfa að taka þátt í sundferðunum. Mótanefndin þarf að vera búin að ganga frá því hverjir fari með hvaða lið í sund áður en lagt er af stað í ferðina.

5. Útbúa þarf minnislista bæði fyrir fararstjóra og foreldra um það sem taka þarf með í keppnisferðirnar.

6. Mikilvægt er að þjálfarar og fararstjórar hittist áður en farið er á mótin. Það þarf að samræma reglur þannig að allir hlýti sömu reglum á meðan á mótinu stendur.

7. Á þessi stærri mót þarf að taka með félagsfána HK. Þá er hægt að nálgast hjá Gunnari Erni Rúnarssyni sími: 893-0561. Passa þarf síðan uppá að fánunum sé skilað til Gunnars strax eftir mótin.

8. Ef panta þarf rútur varðandi þessi mót þá er það gert hjá Hópferðum Inga, sími 554-4466. Flokkarnir bera sjálfir allan kostnað af þessum rútuferðum.

9. Áður en farið er á mótin þarf að athuga hvort einhverjir foreldrar hafi aðgang að þvottvélum á mótsstað. Ef mjög blautt er í veðri er nauðsynlegt að komast í þvottavél og þurrkara. Aðstæður til þess á keppnisstöðum eru mjög mismunandi




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið