Fréttir

17. maí 2004

Óskabyrjun hjá HK í 1. deildinni

HK fékk í kvöld óskabyrjun í 1. deild karla á Íslandsmótinu þegar liðið lagði Fjölni að velli, 1-0, á Kópavogsvellinum. Það var hinn 17 ára gamli Bjarki Már Sigvaldason sem skoraði sigurmarkið, 15 mínútum fyrir leikslok, í sínum fyrsta deildaleik í meistaraflokki. 

Hörður Már Magnússon fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins og verður því í leikbanni þegar HK mætir Val að Hlíðarenda á föstudagskvöldið. Þá fór Árni Thor Guðmundsson af velli, meiddur á ökkla, þegar 10 mínútur voru eftir, og óvíst er að hann verði tilbúinn í slaginn gegn Val.

HK var sterkari aðilinn í leiknum í heild og fékk mun fleiri marktækifæri en Grafarvogspiltarnir. Þeir fengu hinsvegar tvö mjög hættuleg færi þar sem forystan hefði getað fallið þeim í skaut.

Á 10. mínútu voru Fjölnismenn nærri því búnir að skora. Þeir voru snöggir að taka aukaspyrnu, fengu reyndar að taka hana óáreittir 20 metrum of framarlega, og áttu tvö skot af markteig sem Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og varnarmenn HK náðu að komast fyrir á síðustu stundu.

HK fékk síðan fjögur ágæt tækifæri til að ná forystunni í leiknum. Hörður Már komst innfyrir eftir sendingu Stefáns Eggertssonar en varnarmaður náði að bjarga. Brynjar Skúlason átti skot rétt utan markteigs sem Ríkharð Snorrason markvörður Fjölnis varði mjög vel í horn, og Brynjar átti síðan skot í innanverða stöngina úr dauðafæri - boltinn hrökk út til Harðar Más sem skaut, en í varnarmann og í horn. Loks komst Hörður Már í gott færi eftir sendingu Stefáns en hitti ekki markið.

Fjölnir fékk fyrsta færi síðari hálfleiks þegar Hallur Ásgeirsson komst einn gegn Gunnleifi á markteig, en Gulli var eldsnöggur út á móti honum og bjargaði í horn. Eftir þetta var mark HK í lítilli hættu, Gunnleifur varði nokkra "æfingabolta" utan af velli en annað sköpuðu Fjölnismenn sér ekki.

Sigurmarkið kom á 75. mínútu. Hörður Már var felldur á vinstri kantinum, utan við vítateigslínuna. Bjarki Már tók aukaspyrnuna og skoraði beint úr henni, með skoti í markhornið fjær, en boltinn fór í gegnum alla þvöguna við markteiginn án þess að breyta um stefnu.

Þó Fjölnir sækti meira eftir þetta voru marktækifærin HK-inga. Brynjar Skúlason komst í dauðafæri eftir langa sendingu Finns Ólafssonar en skaut framhjá, og síðan varði markvörðurinn skalla Stefáns af markteig. Þegar leiktíminn var liðinn lenti Hörður Már í útistöðum við leikmann Fjölnis þegar báðir lágu á vellinum og var rekinn af velli fyrir vikið.

Viðtöl og meiri umfjöllun um leikinn eru væntanleg síðar í kvöld og á morgun.

Lið HK: Gunnleifur Gunnleifsson - Davíð Magnússon, Árni Thor Guðmundsson (Pálmar Hreinsson 81.), Jóhann Björnsson, Júlíus Valgeirsson - Stefán Eggertsson, Finnur Ólafsson, Gísli Freyr Ólafsson, Bjarki Már Sigvaldason (Gunnar Örn Helgason 87.) - Hörður Már Magnússon, Brynjar Skúlason.
Varamenn sem ekki komu við sögu: Hilmar Rafn Kristinsson, Eyþór Sverrisson, Beitir Ólafsson.

* Brynjar Víðisson tók út eins leiks bann og þeir Birgir Rafn Birgisson, Ásgrímur Albertsson, Jóhann Ingi Jóhannsson og Villy Þór Ólafsson eru meiddir.

* Gunnleifur er orðinn fjórði leikjahæstur í meistaraflokki frá upphafi, komst uppfyrir Guðjón Björnsson með 91 leik.

* Önnur úrslit í 1. umferð:
Valur - Þór 1-1, Völsungur - Þróttur R. 0-0, Njarðvík - Breiðablik 4-0, Haukar - Stjarnan 1-3.

* Næsti leikur HK er gegn Val að Hlíðarenda á föstudagskvöld, 21. maí, kl. 20.00.

Úrslit og staða í 1. deild.
Leikmenn/markaskor 2004.
Leikir mfl.ka. 2004.
Leikskýrslan.

Annað um leik HK og Fjölnis:
Pistill Reynis Bjarna Egilssonar.
Maður leiksins.
Hvað segir Gunnleifur?
Hvað segir Gunnar þjálfari?

Góð aðsókn var á leikinn í kvöld. Efri myndin er úr brekkunni, sú neðri úr stúkunni.






Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið