23. júlí 2004
Valsmenn sluppu međ skrekkinn gegn HK
HK beiđ lćgri hlut fyrir Val, 0-1, í uppgjöri tveggja efstu liđa 1. deildar karla á Kópavogsvellinum í gćrkvöld. Leikurinn var bráđfjörugur og HK sterkari ađilinn meirihluta hans, en náđi ekki ađ nýta sér ţađ og Valsmenn sluppu útfyrir bćjarmörkin međ ţrjú stig sem fleyta ţeim í efsta sćti deildarinnar. Fyrsti sigur ţeirra í fimm leikjum en HK varđ ađ sćtta sig viđ sinn ţriđja ósigur í röđ.
Ţetta var fyrsta tap HK í 11 leikjum á Kópavogsvellinum en ţar beiđ liđiđ síđast lćgri hlut fyrir tćpu ári síđan, 2-3 gegn Víkingi í hörkuleik í 1. deildinni.
Valur er međ 21 stig á toppnum, HK 19 og Blikar međ 17 en ţeir spila viđ Völsung á Húsavík í kvöld. Njarđvík og Fjölnir eru nćst međ 16 stig en rétt er ađ minna á ađ í upphafi móts var HK og Fjölni spáđ falli úr deildinni.
Árni Thor Guđmundsson var valinn mađur leiksins hjá HK gegn Val, af áhorfendum á Kópavogsvelli í gćrkvöld. Finnur Ólafsson varđ annar í kjörinu, Gunnleifur Gunnleifsson ţriđji, Hörđur Már Magnússon fjórđi og Victor K. Victorsson fimmti.
Lesendur HK-vefjarins geta nú valiđ á milli ţessarra fimm leikmanna.
Ţađ var mikil synd ađ HK skyldi ekki fá neitt út úr einum af bestu leikjum sínum á tímabilinu. Ef undan eru skildar fyrstu 20 mínútur leiksins var HK betri ađilinn í uppgjöri toppliđa deildarinnar og fékk mörg tćkifćri til ađ jafna metin, sem ekki nýttust. Mark Valsmanna á 16. mínútu dugđi ţeim ţví til sigurs og ţeir endurheimtu efsta sćtiđ í deildinni sem HK hafđi haldiđ undanfarnar ţrjár umferđir. En HK-ingar gátu boriđ höfuđiđ hátt ţrátt fyrir ósigurinn. "Ţađ er engin furđa ađ ţessi liđ séu á toppnum, ţetta eru greinilega tvö bestu liđ deildarinnar," fyrrum landsliđsmađur úr Val viđ ţann sem ţetta ritar ađ leik loknum. Fleiri úr röđum Vals voru á sama máli, báru lof á liđ HK og töldu sig ljónheppna ađ sleppa međ ţrjú stig úr ţessari fjörugu viđureign. Ţađ er ljóst ađ međ svona fótbolta og baráttu hefđi HK ekki veriđ í vandrćđum međ ađ hirđa sex stig úr leikjunum viđ Stjörnuna og Fjölni, en ţađ er liđin tíđ.
Auđvitađ er smá hlutdrćgni í ţví - en fjórum sinnum í leiknum gat HK gert tilkall til ţess ađ fá dćmda vítaspyrnu, og í eitt skiptiđ var dómarinn reyndar búinn ađ dćma hana, en hćtti síđan viđ. Ótrúlegt ađ ekki skyldi eitthvert eitt af ţessum fjórum tilvikum leiđa af sér vítaspyrnudóm, en ţeim er lýst nánar hér fyrir neđan.
Valsmenn voru betri ađilinn fyrstu 20 mínúturnar og virtust ćtla sér ađ ráđa algjörlega ferđinni í leiknum, og ađ ţeir skyldu ná ađ skora á ţessum kafla dró ekki úr líkunum á ađ svo fćri. En HK-ingar sýndu mikinn styrk, efldust smám saman eftir ţví sem leiđ á fyrri hálfleikinn, og sá síđari var nánast einstefna ađ marki Hlíđarendaliđsins, sem hvađ eftir annađ varđist međ nánast öllu sínu liđi í eigin vítateig. Ţađ var nánast međ ólíkindum ađ sjá ţessa reyndu leikmenn Vals, sem allir hafa spilađ meira og minna í efstu deild, í nauđvörn, hangandi á einu marki út seinni hálfleikinn. Gamalkunnir Valsmenn í stúkunni gripu hvađ eftir annađ um höfuđiđ ţegar ţeirra menn sluppu fyrir horn á síđustu stundu eftir ţungar sóknir HK.
Ţađ var ađeins á stuttum kafla seint í leiknum sem Valsmenn náđu einhverjum sóknarţunga, en HK-ingar rifu sig útúr ţví og undir lokin fengu ţeir tvö algjör dauđafćri til ađ jafna metin - sem ţví miđur nýttust ekki. Brynjar Skúlason og Gunnleifur Gunnleifsson markvörđur (af öllum mönnum!) voru ţar á ferđ í markteignum hjá Val en höfđu ekki heppnina međ sér. Varnarmađur bjargađi frá Brynjari á ótrúlegan hátt en Gunnleifur hitti ekki boltann međ höfđinu fyrir galopnu markinu!
Ţannig gekk leikurinn fyrir sig:
6. mín. Árni Thor skýtur ađ marki Vals eftir hornspyrnu Harđar Más frá hćgri en Hlíđarendapiltar bjarga á marklínu.
8. Jóhann Björnsson skallar til baka á Gunnleif, en of stutt, Árni Pjetursson kemst inní sendinguna og er einn gegn Gunnleifi en skýtur framhjá.
13. Davíđ Magnússon fćr glćsisendingu frá Finni upp hćgri kantinn og leikur inn í vítateig ţar sem hann er felldur. Dómarinn er mjög vel stađsettur, virđist í engum vafa og hleypur beint ađ vítapunktinum - dćmir vítaspyrnu. Valsmenn mótmćla kröftuglega, rjúka í ađstođardómarann, sem ekkert hafđi flaggađ. Hann fćr síđan dómarann til ađ skipta um skođun og dćma aukaspyrnu á vítateigslínunni! Hörđur Már tekur hana og ţrumar í varnarvegginn, boltinn hrekkur til Victors sem er í ágćtu fćri á vítateig en ţrumar hátt yfir markiđ.
16. 0-1. Valsmenn fá hornspyrnu frá hćgri, boltinn berst út á miđja vítateigslínu ţar sem Árni Pjetursson tekur hann á lofti og skorar međ viđstöđulausu skoti, í gegnum alla ţvöguna og neđst í markhorniđ hćgra megin. Fallegt skot.
17. Birgir Rafn Birgisson skýtur af 20 metra fćri en Kristinn Geir markvörđur Vals ver örugglega í markhorninu niđri.
20. Ţórhallur Hinriksson skallar hátt yfir mark HK úr opnu fćri á markteig, eftir langt innkast frá hćgri.
30. Hörđur Már er á siglingu í gegnum vörn Vals ţegar hann er klipptur niđur. Varnarmađurinn sleppur međ skrekkinn og gult spjald.
31. Júlíus Valgeirsson tekur aukaspyrnu frá vinstri og Atli Guđnason skallar úr miđjum vítateig, boltinn strýkst viđ utanverđa stöngina hćgra megin.
33. Atli fćr sendingu í gegnum miđja vörn Vals frá Finni og kemst einn gegn Kristni markverđi sem nćr ađ verja skot hans, en fellir í framhaldinu Atla sem ţar međ á ekki möguleika á ađ hirđa frákastiđ í markteignum. Ekkert dćmt!
42. Atli sendir fyrir mark Vals frá hćgri, beint í höndina á varnarmanni sem stöđvar ţannig fyrirgjöfina. Ekkert dćmt!
43. Atli skallar framhjá marki Vals eftir fyrirgjöf Birgis Rafns frá vinstri.
44. Ţrír Valsmenn eru kolrangstćđir, langt fyrir innan vörn HK, og einn ţeirra skallar framhjá. Skćr kvöldsólin hlýtur ađ hafa blindađ ađstođardómarann!
45. Atli skallar framhjá marki Vals eftir hornspyrnu Harđar Más.
Hálfleikur, 0-1.
55. Árni Thor skýtur ađ marki Vals úr aukaspyrnu af 30 metra fćri, rétt framhjá.
56. Kristinn Geir markvörđur Vals fer í glórulaust úthlaup eftir fyrirgjöf frá hćgri og keyrir Birgi Rafn niđur viđ vítateigslínuna. Ekkert dćmt!
59. Birgir Rafn tekur aukaspyrnu 20 metra frá mark Vals og skýtur í varnarvegginn, Hörđur Már fćr boltann og ţrumar ađ marki, en varnarmađur kemst fyrir boltann.
63. Löng og ţung sókn HK, ţar sem boltinn dansar fram og til baka í vítateig Vals endar međ ţví ađ Atli nćr skoti úr ágćtu fćri í miđjum vítateignum en Kristinn Geir ver örugglega.
67. Árni Pjetursson í góđu fćri viđ mark HK en skýtur framhjá.
69. Gunnleifur ver skalla Baldvins Hallgrímssonar eftir hornspyrnu, án teljandi vandrćđa. Eina marktilraun Vals allan síđari hálfleikinn sem hittir á markrammann.
76. Brynjar Skúlason kemur inná fyrir Birgi Rafn.
77. Victor fćr boltann frá Atla og ţrumar á mark Vals af 20 metra fćri, boltinn stefnir í markhorniđ fjćr en Kristinn Geir ver mjög vel í horn.
78. Victor skallar ađ marki Vals af markteig eftir hornspyrnu Harđar Más frá hćgri - boltinn fer beint í hönd Valsmanns í markteignum. Ekkert dćmt!
80. Bjarki Már Sigvaldason kemur inná fyrir Stefán Eggertsson.
81. Ásgrímur Albertsson kemur inná fyrir Júlíus. Fyrsti meistaraflokksleikur Ása síđan hann meiddist í janúar.
84. Árni Pjetursson í ágćtu fćri eftir aukaspyrnu Vals en skýtur hátt yfir.
86. Jóhann G. Möller, Valsmađur, fćr sitt annađ gula spjald og er ţar međ rekinn af velli.
87. HK fćr aukaspyrnu rétt viđ vítateigslínu eftir brotiđ. Hörđur Már tekur spyrnuna og ţrumar á markiđ. Kristinn Geir ver naumlega, boltinn fer fyrir fćtur Brynjars Skúlasonar, sem skýtur föstu skoti af tveggja metra fćri en á ótrúlegan hátt tekst varnarmanni Vals ađ kasta sér fyrir boltann, sem fer í hann og í horn!
88. Gunnleifur markvörđur er í algjöru dauđafćri í markteig Vals, eftir hornspyrnu Harđar Más frá hćgri - fćr gjörsamlega frían skalla og ţarf ađeins ađ snerta boltann til ađ skora, en hittir ekki tuđruna!!
88. Árni Thor fćr gula spjaldiđ fyrir brot.
89. Jóhann fćr gula spjaldiđ fyrir ađ henda boltanum til Valsmanns sem átti ađ fara ađ taka aukaspyrnu.
Ađsókn á leikinn var merkilega góđ, stúkan nokkuđ ţétt og fjölmargir í brekkunni, en samt voru nálćgt 200 HK-ingar á öllum aldri fjarverandi vegna keppnisferđa. Ţađ ćtti ţví ađ verđa rífandi ađsókn ţegar félögin mćtast á ný í 8-liđa úrslitum bikarkeppninnar á sama stađ ţann 4. ágúst. Vonandi verđa ţá stuđningsmenn HK búnir ađ finna trommurnar góđu, sem voru einhvers stađar lćstar inni, ţannig ađ stuđningsmenn Vals sáu einir um trommuslátt í stúkunni ađ ţessu sinni!
Ţess má geta ađ á međal áhorfenda voru forráđamenn frá Glasgow Rangers í Skotlandi og Örgryte í Svíţjóđ en ţessi félög eru međ liđ á Rey-Cup í Laugardalnum ţessa dagana.
Liđ HK: Gunnleifur Gunnleifsson - Davíđ Magnússon, Árni Thor Guđmundsson, Jóhann Björnsson, Júlíus Valgeirsson (Ásgrímur Albertsson 81.) - Stefán Eggertsson (Bjarki Már Sigvaldason 80.), Victor K. Victorsson, Hörđur Már Magnússon, Finnur Ólafsson, Birgir Rafn Birgisson (Brynjar Skúlason 76.) - Atli Guđnason.
Varamenn sem ekki komu inná: Beitir Ólafsson, Brynjar Víđisson.
* Atli lék sinn fyrsta leik fyrir HK en hann kom frá FH sem lánsmađur út tímabiliđ.
Leikmenn/markaskor 2004.
Tölfrćđi, leikir/mörk.
Leikir mfl.ka. 2004.
Stađan í 1. deild karla.
Leikskýrslan.
Gunnar um leikinn.
Gunnleifur um leikinn.
Ath. Myndir geta ekki fylgt fréttunum fyrst í stađ en ţćr verđa myndskreyttar um leiđ og úr ţví rćtist.
Til baka
Miđvikudaginn 22.maí
19.15 Stjarnan - HK/Víkingur, Pepsi kv., knatt.
Miđvikudaginn 22.maí
20.00 Ýmir - Mídas, 4.deild ka, knatt.
Fimmtudaginn 23.maí
19.15 Hamar - HK, 2. deild ka., knatt.
Mánudaginn 27.maí
20.00 Elliđi - Ýmir, 4.deild ka., knatt.
Ţriđjudaginn 28.maí
19.15 HK/Víkingur - FH, Pepsi kv., knatt.
Miđvikudaginn 29.maí
19.15 Sindri - Ýmir, Bikar ka., knatt.

Leikmenn
Reykjavíkurmót 2010