Fréttir

17. september 2004

Sex eitt og HK í þriðja sæti 1. deildar

HK vann stórsigur á Stjörnunni, 6-1, í lokaumferð 1. deildar karla á Kópavogsvelli í kvöld. Þar með endaði HK í þriðja sæti deildarinnar sem er besti árangur félagsins frá upphafi í meistaraflokki karla. Birgir Rafn Birgisson, Atli Guðnason og Hörður Már Magnússon sáu um mörkin og skoruðu tvö mörk hver en HK skoraði fimm mörk á síðustu 27 mínútum leiksins. Með þessum úrslitum féll Stjarnan í 2. deild.

HK er jafnframt í fyrsta skipti í sögunni efsta lið Kópavogs á Íslandsmótinu. Haukar tryggðu HK það með því að jafna á lokasekúndunum, 2-2, gegn Breiðabliki, og um leið forðuðu þeir sér sjálfir frá falli. Njarðvík, sem gerði 1-1 jafntefli við Þrótt, féll í 2. deild með Stjörnunni. Völsungur tryggði sæti sitt  með 3-0 sigri á Þór.

Lokastaðan í 1. deild.

Það var ekkert spennufall að sjá á liði HK þó ekki væri að miklu að keppa í lokaumferð deildarinnar og fjóra leikmenn vantaði í hópinn vegna leikbanna og meiðsla. Stjörnumenn höfðu allt að vinna, þeir urðu að sigra til að eiga möguleika á að halda sér uppi, og eins og aðrir leikir fóru hefði þeir gert það með því að ná í stigin þrjú.

Leikurinn var í járnum fram í miðjan síðari hálfleik, eftir 1-0 fyrir HK í hálfleik jöfnuðu þeir og virtust til alls líklegir. Þá skoraði Birgir Rafn annað mark HK, Gunnleifur varði úr dauðafæri og í staðinn komst HK í 3-1. Þar með var mótspyrna Stjörnumanna brotin á bak aftur og HK-ingar fóru hreinlega á kostum á lokakafla leiksins og bættu við þremur mörkum. Þeir Hörður Már, Birgir Rafn og Atli léku vörn Garðbæinga sundur og saman hvað eftir annað, vel studdir af félögum sínum. Hörður Már kom við sögu í öllum sex mörkum HK, Atli í fjórum og Birgir Rafn í þremur.

Það voru þung skref sem Stjörnumenn þurftu að taka af Kópavogsvellinum í leikslok eftir að hafa leikið í 16 ár í efri deildunum. Þeir voru í stöðu sem enginn vill upplifa og HK sendir þeim baráttukveðjur og óskar þeim góðs gengis í baráttunni fyrir því að komast í 1. deildina á ný.

Lokaniðurstaðan hjá HK er því þriðja sætið, aðeins tveimur stigum á eftir Þrótti sem fór upp í úrvalsdeildina ásamt Val. Þetta er frammistaða sem fáir reiknuðu með fyrir tímabilið þegar margir spáðu HK falli úr deildinni. Og það er meira að segja hægt að svekkja sig yfir töpuðum stigum hér og þar, sem gerðu drauminn um úrvalsdeildarsæti að engu.

Og nú er bónusinn eftir. Undanúrslitaleikur gegn Keflavík í bikarkeppninni á Laugardalsvellinum sunnudaginn 26. september. HK hefur því enn að mörgu að keppa, getur unnið bikarinn, getur komist í Evrópukeppni - það eru allir möguleikar opnir í þeim efnum ennþá. En fyrst og fremst eiga HK-ingar í væntum hátíðisdag á þjóðarleikvanginum eftir rúma viku, og það er dagur og leikur sem leikmenn HK og allir félagsmenn eiga eftir að njóta, sama hvernig fer.

Þannig gekk leikurinn fyrir sig:

2. mín.: Stjörnumenn eiga skalla í þverslá eftir hornspyrnu, úr þröngu færi hægra megin.

6. Gísli Freyr Ólafsson með hörkuskot af 25 metra færi, markvörður Stjörnunnar ver en heldur ekki boltanum, Atli fylgir á eftir en skýtur yfir.

9. Hörður Már með skot af 25 metra færi, framhjá.

12. Stjörnumenn bjarga á marklínu frá Stefáni Eggertssyni eftir hornspyrnu.

21. Gísli Freyr þrumar á markið af 20 metra færi, framhjá.

22. Birgir Rafn leikur inní vítateiginn vinstra megin og fellur í návígi við varnarmann. Vítaspyrna, og úr henni skorar Hörður Már Magnússon af öryggi, 1-0.

26. Dauðafæri hjá Stjörnunni en Dragoslav Stojanovic hittir ekki boltann í markteignum.

28. Adolf Sveinsson, Stjörnumaður með aukaspyrnu af hægri kanti, rétt við markvinkilinn, en Gunnleifur Gunnleifsson var alltaf öruggur um að verja.

Hálfleikur.

48. Sannkallað dauðafæri hjá Emil Sigurðssyni, Stjörnumanni, sem kemst einn gegn Gunnleifi. Hann ver skot hans, Emil fær boltann aftur, en Gulli ver aftur!

51. Góð sókn hjá HK endar með fínu skoti Atla af 20 metra færi en markvörðurinn ver.

58. Stojanovic jafnar fyrir Stjörnuna með skalla eftir hornspyrnu, 1-1.

63. Hörður Már sendir boltann í gegnum Stjörnuvörnina á Atla sem kemst einn gegn markverðinum. Í stað þess að skjóta rennir hann boltanum óeigingjarnt til vinstri þar sem Birgir Rafn kemur á ferðinni og sendir boltann í tómt markið, 2-1.

64. Gísli Freyr með hörkuskot rétt framhjá Stjörnumarkinu.

65. Stojanovic kemst í ágætt færi við vítateigslínu en skýtur beint á Gunnleif.

68. Júlíus Valgeirsson sendir fyrir Stjörnumarkið frá vinstri og Gísli Freyr skallar boltann hárfínt framhjá markstönginni vinstra megin.

72. Stojanovic kemst í dauðafæri eftir skyndisókn Stjörnunnar en Gunnleifur ver glæsilega í horn.

73. Atli fær stungusendingu frá Herði Má í gegnum vörn Stjörnunnar, kemst einn gegn markverðinum og lyftir boltanum snyrtilega framhjá honum og í netið, 3-1.

73. Pálmar Hreinsson kemur inná fyrir Gísla Frey.

75. Hörður Már hirðir boltann af varnarmanni Stjörnunnar og rennir honum innfyrir á Atla. Hann er kominn einn gegn markverðinum, en nákvæmlega eins og í öðru marki HK rennir Atli boltanum til hliðar og Birgir Rafn skorar auðveldlega, 4-1.

79. Brynjar Víðisson með skot af 20 metra færi eftir góða sókn og sendingu Atla, rétt framhjá markvinklinum.

79. Birgir Rafn kemst í ágætt færi vinstra megin í vítateignum en þrumar boltanum rétt yfir þverslána. Hársbreidd frá þrennunni.

80. Brynjar V. fær boltann rétt innan vítateigs í góðu færi eftir sendingu Pálmars og á hörkuskot en naumlega yfir markið.

81. Birgir Rafn sleppur inn í vítateiginn vinstra megin eftir sendingu Harðar Más en markvörðurinn ver skot hans.

82. Finnur Ólafsson með góða sendingu frá hægri yfir að vinstra vítateigshorni, Hörður Már leggur boltann fyrir sig með einni snertingu og dúndrar honum síðan af öllu afli í Stjörnumarkið, uppundir þverslána, 5-1.

86. Hilmar Rafn Kristinsson kemur inná fyrir Birgi Rafn.

87. Beitir Ólafsson leysir Gunnleif af hólmi í markinu.

89. Hörður Már kemst inní vítateiginn vinstra megin og rennir boltanum fyrir markið á Atla sem sendir hann í netið af markteig, 6-1.

Lið HK: Gunnleifur Gunnleifsson (Beitir Ólafsson 87.) - Stefán Eggertsson, Ásgrímur Albertsson, Jóhann Björnsson, Júlíus Valgeirsson - Gísli Freyr Ólafsson (Pálmar Hreinsson 73.), Finnur Ólafsson, Hörður Már Magnússon, Brynjar Víðisson, Birgir Rafn Birgisson (Hilmar Rafn Kristinsson 87.) - Atli Guðnason.

* Beitir lék sinn fyrsta leik á Íslandsmóti meistaraflokks.

* Fyrra mark Harðar var hans 40. fyrir meistaraflokk HK.

* Birgir Rafn skoraði sín fyrstu mörk fyrir HK á Íslandsmóti.

* Pálmar og Hilmar léku sinn fyrsta leik síðan 21. maí en þeir hafa báðir verið meiddir í mestallt sumar.

* HK hefur einu sinni áður skorað 6 mörk í leik í næstefstu deild. Það var árið 1995 þegar HK vann Þór, 6-0, á Kópavogsvellinum.

Leikmenn/markaskor 2004.
Tölfræði, leikir/mörk.
Leikir mfl.ka. 2004.
Maður leiksins.
Afmælisgjöf til Gunnsa.

Mynd: Birgir Rafn fagnar sigrinum en hann skoraði tvö mörk og krækti í vítaspyrnu.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið