| Leikir/mörk í efstu deild: 37/0 Önnur félög í mfl.: Keflavík.
Lék með Fram í yngri flokkum en kom til HK í 3. flokki.
Kom inn í meistaraflokkinn þegar hann var á miðárinu í 2. flokki síðsumars 1999, var fastamaður í hópnum eftir það og er annar leikjahæsti leikmaður meistaraflokks frá upphafi.
Spilaði alla mótsleiki HK, 29 talsins, á árinu 2003, alla í byrjunarliði, og skoraði tvö mörk. Fékk framfaraverðlaun meistaraflokks í lok tímabilsins.
Meiddist í janúar 2004 og var ekki leikfær á ný fyrr en í júlí og missti því af fyrri umferð Íslandsmótsins. Spilaði því aðeins 9 mótsleiki á árinu.
Gekk til liðs við Keflavík í ársbyrjun 2005. Lék 3 leiki í úrvalsdeildinni en sneri aftur til HK 25. júlí og spilaði 4 deildaleiki á lokaspretti 1. deildarinnar.
Lék sinn 100. leik með meistaraflokki í ágúst 2005, fimmti leikmaður HK til að ná þeim áfanga.
Spilaði alla 25 mótsleiki HK á árinu 2006 og var í byrjunarliði í öllum 18 leikjunum í 1. deildinni.
Lék sinn 150. leik með meistaraflokki í ágúst 2007, fjórði leikmaður HK til að ná þeim áfanga.
Spilaði 26 af 28 mótsleikjum HK árið 2007. Lék alla 18 leikina í úrvalsdeildinni, alla í byrjunarliði. Komst í mars 2008 í 2. sætið yfir leikjahæstu meistaraflokksmenn HK frá upphafi.
Viðtal við Ásgrím í september 2006.
Hver er maðurinn?
Lék 24 af 30 mótsleikjum HK árið 2008. Þar af voru 16 leikir í úrvalsdeildinni, allir í byrjunarliði.
Tók við stöðu fyrirliða í febrúar 2009 og gegndi henni í 23 mótsleikjum á árinu.
Lék sinn 200. leik með meistaraflokki HK í lok júlí 2009.
Lék 27 mótsleiki fyrir HK á árinu 2009 og skoraði 2 mörk. Þar af voru 17 leikir og eitt mark í 1. deild.
Samdi á ný við HK til þriggja ára í nóvember 2009.
Setti leikjamet fyrir HK á Íslandsmóti 28. júlí 2010 með því að spila sinn 159. deildaleik fyrir félagið og komst með því uppfyrir Gunnleif Gunnleifsson.
Sló heildar leikjamet félagsins 11. september 2010 þegar hann lék sinn 233. leik fyrir meistaraflokk HK og sló þar met Gunnleifs.
Lék 29 mótsleiki með HK árið 2010 og skoraði 3 mörk. Þar af voru 20 leikir og eitt mark í 1. deild. Fyrirliði liðsins á tímabilinu.
Missti talsvert framan af tímabilinu 2011 vegna meiðsla en lék síðan 18 leiki, þar af 16 í 1. deildinni, og tók á ný við fyrirliðastöðunni. Varð í september fyrstur HK-inga í sögunni til að spila 250 mótsleiki með meistaraflokki félagsins.
HK-leikir: Íslandsmót: 181/4 Bikarkeppni: 19/2 Deildabikar: 49/3 Kópavogsmót: 2/0
Ferill í deildakeppni:
| Félag |
Ár |
Deild |
Leikir |
Mörk |
| HK |
1999 |
C |
4 |
0 |
| HK |
2000 |
C |
11 |
1 |
| HK |
2001 |
D |
16 |
0 |
| HK |
2002 |
C |
15 |
0 |
| HK |
2003 |
B |
18 |
1 |
| HK |
2004 |
B |
8 |
1 |
| Keflavík |
2005 |
A |
3 |
0 |
| HK |
2005 |
B |
4 |
0 |
| HK |
2006 |
B |
18 |
0 |
| HK |
2007 |
A |
18 |
0 |
| HK |
2008 |
A |
16 |
0 |
| HK |
2009 |
B |
17 |
1 |
| HK |
2010 |
B |
20 |
1 |
| HK |
2011 |
B |
16 |
0 |
|
|
Alls: |
184 |
5 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| |