Leikmenn
Til baka
| Hörður Már Magnússon
Fæddur: 1971
Mfl.leikir: 123 (ÍK 71) Mfl.mörk: 53 (ÍK 37) Staða: Miðjumaður, sóknarmaður Ferill í mfl. HK: Frá 2002. (ÍK 1988-1991) |
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Leikir/mörk í efstu deild: 135/16 Önnur félög í mfl.: ÍK, Valur, Leiftur, Ýmir Lék með öllum yngri flokkum ÍK, í sigursælum árgangi, og kom ásamt þeim hópi inn í meistaraflokk ÍK á árunum 1988-89. Spilaði þar sína fyrstu leiki aðeins 16 ára gamall sumarið 1988. Fastamaður í liðinu þrjú næstu ár á eftir og hafði leikið 71 meistaraflokksleik þegar ÍK var lagt niður í árslok 1991. Þá hafði hann vakið mikla athygli annarra liða og gekk til liðs við Valsmenn í kjölfarið. Lék með Val og síðan Leiftri í efstu deild frá 1992 til 2000, alls 115 leiki í deildinni og skoraði þar 13 mörk. Spilaði með Leiftri í 1. deild 2001 en fluttist síðan í Kópavog á ný og gekk til liðs við HK. Varð markahæsti leikmaður HK 2002, skoraði 16 mörk í 19 leikjum, þar af 13 mörk í 2. deildinni. Skoraði fernu í lokaleik deildarinnar og gerði þá sitt 50. mark í deildakeppninni. Gerði 6 mörk í 16 leikjum í 1. deildinni 2003 og var valinn leikmaður ársins í meistaraflokki. Varð markakóngur HK 2004 með 18 mörk í 24 mótsleikjum, var einn af fimm markakóngum 1. deildar með 9 mörk og markahæsti leikmaður bikarkeppni KSÍ með 5 mörk. Valinn besti leikmaður 1. deildar 2004 af þjálfurum deildarinnar og í úrvalslið 1. deildar hjá fótbolti.net. Lék sinn 150. leik fyrir ÍK og HK samanlagt í ágúst 2005. Spilaði 15 af 28 mótsleikjum HK 2005 en missti af 13 leikjum vegna meiðsla, þar af 10 leikjum í 1. deildinni þar sem hann var frá keppni frá júníbyrjun og fram í miðjan ágúst. Lék 16 af 25 mótsleikjum HK 2006 og skoraði 7 mörk. Þar af voru 11 leikir og 5 mörk í 1. deild en hann missti af þremur leikjum í byrjun móts og þremur síðustu leikjunum vegna meiðsla. Gegn Fjölni þann 18. ágúst lék Hörður Már sinn 250. deildaleik á Íslandsmótinu frá upphafi. Meiddist seint um sumarið 2006 og var frá keppni fram á mitt sumar 2007. Spilaði fyrst með Ými, varaliði HK, í 3. deildinni í júlí og kom síðan inn í liðið í ágúst eftir eins árs fjarveru. Lék þá sinn 100. leik með meistaraflokki HK. Spilaði sex leiki í úrvalsdeildinni á lokasprettinum 2007 og skoraði eitt mark. Annar markahæsti leikmaður HK frá upphafi með 51 mörk, og annar markahæstur samanlagt með ÍK og HK, með 88 mörk. Hver er maðurinn? Lék 18 mótsleiki með HK tímabilið 2008 og skoraði 2 mörk. Þar af voru 14 leikir og 2 mörk í úrvalsdeildinni. Ákvað að leggja skóna á hilluna að tímabilinu loknu og var heiðraður fyrir lokaleikinn, gegn Breiðabliki, en þar skoraði hann í 2-1 sigri HK, í síðustu umferð Íslandsmótsins. Tók skóna tímabundið af hillunni sumarið 2010 þegar hann lék 18 leiki með KS/Leiftri í 2. deildinni. HK-leikir: Íslandsmót: 87/35 Bikarkeppni: 10/5 Deildabikar: 24/13 Kópavogsmót: 2 Ferill í deildakeppni:
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Til baka
Á næstunni
Miðvikudaginn 22.maí
19.15 Stjarnan - HK/Víkingur, Pepsi kv., knatt.
Miðvikudaginn 22.maí
20.00 Ýmir - Mídas, 4.deild ka, knatt.
Fimmtudaginn 23.maí
19.15 Hamar - HK, 2. deild ka., knatt.
Mánudaginn 27.maí
20.00 Elliði - Ýmir, 4.deild ka., knatt.
Þriðjudaginn 28.maí
19.15 HK/Víkingur - FH, Pepsi kv., knatt.
Miðvikudaginn 29.maí
19.15 Sindri - Ýmir, Bikar ka., knatt.
Skoða alla skráða atburði
Könnun

Leikmenn
Reykjavíkurmót 2010