Fréttir

25. júní 2007

Ágætur leikur en tap gegn Fylki

Slæmur fimm mínútna kafli varð HK-stúlkum að falli þegar þær tóku á móti Fylki á Íslandsmóti 3. flokks á keppnisvellinum í Fagralundi í gærkvöld. HK var betri aðilinn meginhluta leiksins en varð að sætta sig við ósigur, 0-2.

Þetta var langþráður fyrsti leikur HK á Íslandsmótinu í ár en breytingar á mótinu og tilfærslur urðu til þess að ekki var byrjað fyrr. En fyrir vikið er nokkuð þétt dagskrá framundan næstu vikurnar.

HK byrjaði mjög vel og fékk dauðafæri á 7. mínútu þegar Sóley Rut Þrastardóttir átti hörkuskot rétt utan markteigs en markvörður Fylkis varði vel.

Fylkisliðið átti eina hættulega sókn og skot framhjá marki áður en það náði forystunni á 19. mínútu. Margrét Ýr Björnsdóttir varði þá glæsilega en Fylkisstúlka náði að fylgja á eftir og skora, 0-1. Fimm mínútum síðar urðu HK-stúlkum á alvarleg varnarmistök sem Árbæingarnir nýttu sér, 0-2.

Eftir slæman kafla í kringum mörkin réttu HK-stúlkur vel úr kútnum og stjórnuðu leiknum að mestu til leiksloka. Í seinni hálfleik gerðu þær oft harða hríð að marki Fylkis og þar fór Íris Dóra Snorradóttir fremst í flokki. Hún fékk ein fjögur góð marktækifæri í seinni hálfleiknum en hafði ekki heppnina með sér.

HK-stúlkur eiga hrós skilið fyrir góða baráttu og að gefast aldrei upp þrátt fyrir áföll snemma í leiknum. Lukkan var ekki á þeirra bandi í þetta skiptið en þær héldu mótherjunum undir þungri pressu á löngum köflum og sýndu að þær hafa alla burði til að standa sig vel í sumar.

Lið HK: Margrét Ýr Björnsdóttir - Arna Dýrfjörð (Hildigunnur Sól Kristjánsdóttir 66.), Sigurbjörg Gísladóttir (Ellen Torfadóttir 41.), Erla Björk Jónsdóttir, Helga Þórðardóttir - Berglind Anna Víðisdóttir (Gerður Guðjónsdóttir 66.), Ingibjörg Sigvaldadóttir, Guðný Magnúsdóttir (Guðlaug Jónsdóttir 41.), Sóley Rut Þrastardóttir - Íris Dóra Snorradóttir, Alexandra Gunnarsdóttir (Guðrún Hermannsdóttir 41.)

Staðan í deildinni.

Næsti leikur HK-stúlkna er gegn Þór á Akureyri á laugardaginn kemur en til stendur að fara norður snemma á föstudag og koma ekki aftur heim fyrr en á sunnudagskvöld.

Mynd 1: Íris Dóra var aðgangshörð við mark Fylkis.

Mynd 2: Ingibjörg í baráttunni á miðjunni, einu sinni sem oftar.

Mynd 3: Berglind Anna og Íris Dóra sækja að Fylkismarkinu.

Mynd 4: Guðný á vaktinni í vörninni.












Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið