28. júní 2007
Tíu Ýmismenn töpuðu á Selfossi
Ýmismenn áttu á brattann að sækja á Selfossi í kvöld þegar þeir sóttu lið Árborgar heim í 3. deildinni. Strax á 9. mínútu fékk Björgvin Sigurbjörnsson varnarmaður Ýmis rauða spjaldið og leikmenn liðsins voru því einum færri nær allan leikinn. Heimamenn gengu á lagið og unnu að lokum sigur, 3-0.
Það var samt ekki að sjá að annað liðið væri manni færra. Leikurinn var jafn, Ýmismenn spiluðu mjög vel lengst af og fengu gullið færi til að komast yfir á 22. mínútu þegar dæmd var vítaspyrna á Árborg en Úlfar Freyr Jóhannsson komst þá inní sendingu varnarmanna og var felldur af markverðinum. Beitir Ólafsson markvörður Ýmis fór á punktinn en skaut langt yfir mark Árborgar og tók vítapunktinn með sér í leiðinni!
Áður hafði Úlfar fengið fínt færi eftir sendingu Harðar Magnússonar innfyrir vörn Árborgar en hann náði ekki að athafna sig nægilega vel og það fór forgörðum.
Árborg náði forystunni á 27. mínútu, 1-0. Sævar Davíðsson átti fínt skot að marki á 34. mínútu en yfir. Litlu munaði að jöfnunarmark kæmi eftir hornspyrnu á 50. mínútu en boltinn fór rétt framhjá. Hörður átti þrumuskot af löngu færi á 62. mínútu en rétt yfir markið.
Á 68. mínútu gerðist mjög umdeild atvik sem líklega réð úrslitum leiksins. Ýmismenn voru búnir að biðja um skiptingu og héldu að dómarinn hefði gefið leyfi fyrir henni en línuvörðurinn hafði þá haldið flagginu lengi á lofti. Leikmenn Árborgar nýttu sér það að mótherjarnir voru ekki með hugann við leikinn og skoruðu, 2-0.
Á 75. mínútu fékk Ýmir fínt færi, Hörður gerði vel fyrir framan markið og kom boltanum á Leif Andra Leifsson sem átti skot framhjá. Árborg skoraði svo, 3-0, á síðustu mínútu leiksins en þá voru Ýmismenn orðnir dauðþreyttir, tíu gegn ellefu í 80 mínútur.
"Leikurinn var jafn, við áttum fullt í leiknum og ég er viss um að ef við hefðum nýtt vítaspyrnuna og komist yfir, hefði sigurinn fallið okkar megin. Við lentum hinsvegar í því sama og oft áður í sumar að skapa okkur marksénsa en nýta þá ekki. Annars getum við verið sáttir við frammistöðuna, baráttan var til fyrirmyndar og það var ekki að sjá að við værum manni færri fyrr en kannski undir lokin," sagði Óli Þór Júlíusson, sem gat ekki spilað vegna meiðsla í baki en var liðsstjóri að þessu sinni.
Lið Ýmis: Beitir Ólafsson - Gunnar Þjóðólfsson, Sævar Davíðsson, Björgvin Sigurbjörnsson, Indriði Björn Þórðarson - Jónas Guðmundsson (Leifur Andri Leifsson 63.), Sigurður Lár Gunnarsson (Haukur Ploder 68.), Rúnar Már Sigurjónsson (Jón Einar Hjaltested 55.), Þröstur Friðberg - Úlfar Freyr Jóhannsson (Sigurður B. Markússon 88.), Hörður Magnússon.
Mynd: Beitir Ólafsson nýtti ekki vítaspyrnu þegar staðan var 0-0.
Til baka
Laugardaginn 18.maí
16.00 HK/Víkingur - Þór/KA, Pepsi kv., knatt
Miðvikudaginn 22.maí
19.15 Stjarnan - HK/Víkingur, Pepsi kv., knatt.
Miðvikudaginn 22.maí
20.00 Ýmir - Mídas, 4.deild ka, knatt.
Fimmtudaginn 23.maí
19.15 Hamar - HK, 2. deild ka., knatt.
Mánudaginn 27.maí
20.00 Elliði - Ýmir, 4.deild ka., knatt.
Þriðjudaginn 28.maí
19.15 HK/Víkingur - FH, Pepsi kv., knatt.

Leikmenn
Reykjavíkurmót 2010