Fyrsti þjálfarinn

Viðtal við Kristin Pedersen, fyrsta þjálfara meistaraflokks ÍK, sem birtist í ÍK-blaðinu í árslok 1986, í tilefni af 10 ára afmæli félagsins 23. október það ár:

Við vorum skíthræddir

fyrir fyrsta deildaleikinn á Melavellinum þegar ÍK vann ÍR 4-0. Kristinn skoraði fyrsta markið.

"Við vorum allir skíthræddir fyrir þennan fyrsta leik okkar, gegn ÍR á Melavellinum. En fljótlega fengum við vítaspyrnu sem ég skoraði úr og eftir það tókum við leikinn í okkar hendur og sigruðum 4-0," sagði Kristinn Pedersen, fyrsti þjálfari meistaraflokks ÍK, sem skoraði fyrsta mark félagsins í Íslandsmóti 3. deildar í júní 1977.

"Þetta gekk ágætlega hjá okkur og það munaði ekki miklu að við kæmumst í úrslit 3. deildar. Flestir strákanna voru gamlir Blikar, þetta var góður hópur og góður andi," sagði Kristinn.

Hann þjálfaði liðið annað ár og lék einnig með hluta af keppnistímabilinu 1982. "Ég hef alltaf fylgst vel með gengi ÍK, þetta loðir við mann og ég kíki af og til á leiki liðsins. Það hefur breyst mikið síðan fyrstu árin og er mjög sterkt í dag. Úrslit í leikjum ÍK er vanalega það fyrsta sem ég gái að í blöðunum," sagði Kristinn Pedersen.

* Kristinn hefur starfað um árabil hjá lögreglunni í Reykjavík og spilar enn knattspyrnu með gömlum félögum þó kominn sé á sextugsaldur. (okt.2001)




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvernig gengur HK í 2. deild karla í sumar?

Vinnur deildina


Endar í 2. sæti


3.-5. sæti


Endar neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið