Fjórar HK stelpur valdar í Hæfileikamótun stúlkna

Lúðvík Gunnarsson yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ valdi á dögunum leikmenn sem koma saman til æfinga í dagana 27. – 29.október næstkomandi. Æfingarnar fara fram í Skessunni í Kaplakrika og á HK fjóra fulltrúa í hópunum.

 

Það eru þær Eydís Eik Sigurðardóttir, Ragnhildur Sóley Jónasdóttir, Andrea Elín Ólafsdóttir og Emilía Anna Jónasdóttir.

 

Við óskum stelpunum til hamingju með valið.

Áfram HK!