Sumarnámskeið HK 2024

_

Í sumar mun HK bjóða upp á fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 10 ára (2014-2018). HK reynir eftir fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumarið er engin undantekning. Skipulögð dagskrá frá kl. 09:00-12:00 og 13:00-16:00 alla virka daga. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og er skráning sérstaklega í það.

Allir umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Skráning er hafin hér: HK | Vefverslun

Smellið hér fyrir frekari leiðbeiningar um skráningu í gegnum Abler

_

Í ár verða 5 mismunandi námskeið í boði:

 Blakskóli HK
 Skráning hér

 5 námskeið (2013-2017)

 Borðtennisskóli HK
 Skráning hér

 4 námskeið (2014-2017)

 Fjölgreinanámskeið
 Skráning hér

 2 námskeið (2015-2018)

 Handboltaskóli HK
 Skráning hér

 5 námskeið (2014-2017)

 Knattspyrnuskóli HK
 Skráning hér

 6 námskeið (2014-2017)

 

Gagnlegar upplýsingar:

  • Sama verð er á öll ½ dags námskeið.
  • 10% systkinaafsláttur veittur af námskeiðum innan sömu deildar.
  • Ekki er heimilt að breyta skráningu námskeiða eftir að námskeið er hafið.
  • Hvert stakt námskeið reiknast 3 klst.
  • Fyrir heilsdagsnámskeið eru tvö stök námskeið sett í körfu.
  • Gert er ráð fyrir að börnin taki með sér hollt nesti og vatnsbrúsa en einn nestistími er á hverju 3 klst. námskeiði.
  • Börn sem eru á námskeiðum fyrir og eftir hádegi skulu mæta með hollt og gott nesti. Í Kórnum er aðstaða fyrir iðkendur að borða og bíða eftir næsta námskeiði. Starfsmenn eru á svæðinu.
  • SAMLOKUKORT og annað snarl er til sölu í afgreiðslu í Kórnum.
  • Boðið er upp á heitan mat í hádeginu gegn vægu gjaldi, skráning í gegnum Abler. 
  • Fjölgreinanámskeið í ágúst er fyrir öll börn fædd 2015-2018. Börnin fá tækifæri til að kynnast fjórum íþróttagreinum; blaki, borðtennis, handbolta og knattspyrnu, ásamt útiveru og náttúrunni í nærumhverfi HK. Heit máltíð í hádeginu er innifalin í verði. Hver dagur er vel skipulagður. Börnin mæta í Kórinn og enda daginn þar líka.

  • Við opnum kl. 08:45 á morgnana og forráðamenn eru beðnir að sækja börnin sín tímanlega en öllum námskeiðum lýkur kl. 16:00.


Verðskrá:

Námskeið ½ dagur
3 klukkustundir (5 dagar)
Heitur matur í hádeginu

 8.500 kr.

 4.000 kr.

Námskeið ½ dagur
3 klukkustundir (4 dagar)
Heitur matur í hádeginu

 6.800 kr.*

 3.000 kr.

Fjölgreinanámskeið heill dagur
7 klukkustundir (5 dagar)

 21.000 kr.

Fjölgreinanámskeið heill dagur
7 klukkustundir (4 dagar)

 16.600 kr.*

*Stjörnumerktar vikur eru 4 dagar


Fleiri gagnlegar upplýsingar:

  • HK áskilur sér rétt til að sameina námskeið ef ekki næst lágmarksþátttaka.
  • HK áskilur sér rétt til að loka fyrir skráningu á námskeið ef hámarksfjölda er náð.
  • HK áskilur sér rétt til að breyta dagskrá (t.d. vegna veðurs eða mætingar á námskeið).
  • Það er mikilvægt að nærast vel og viljum við því biðla til foreldra að senda börn með hollt og gott nesti og vatnsbrúsa (eitt nesti á hverju 3 klst. námskeiði) 
  • ATHUGIÐ! Hnetur og aðrir bráða ofnæmisvaldar bannaðir.
  • Iðkendur eru beðnir um að mæta klæddir eftir aðstæðum. Eftir veðri ef útivera er á dagskrá og eða í viðeigandi klæðnaði, íþróttafötum og helst íþróttaskóm.

Frekari upplýsingar um námskeið og fyrirkomulag námskeiða veitir íþrótta- og markaðsstjóri HK, arnor@hk.is.