Aðalfundur knattspyrnudeildar 2023

Aðalfundur knattspyrnudeildar, þar á meðal barna- og unglingaráðs, verður haldinn í veislusalnum í Kórnum, Vallakór 12-14, mánudaginn 27. mars 2023 kl. 18:00.  Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.  Samkvæmt kröfum leyfiskerfis KSÍ var ársreikningur deildarinnar fyrir árið 2022 staðfestur fyrir 20. febrúar sl. og er hann birtur á meðfylgjandi slóð:  https://www.hk.is/static/files/fotbolti/hk-knattspyrna-sameiginlegt-arsreikningur-2022.pdf

Meðal rekstrargjalda eru greiðslur til umboðsmanna og námu þær samtals 1.294.578 kr. á árinu 2022.