- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Handknattleiksfélag Kópavogs
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Frístundarbíllinn fer af stað mánudaginn 2. september 2024. Fyrirkomulag vagnsins verður eins og á vorönn 2024 og verður aksturinn í boði mánudaga til fimmtudaga.
Frístundavagninn verður mannaður með starfsmönnum sem aðstoða börnin við að spenna beltin, passa upp á dótið sitt og fara út á réttum stað. Foreldrar greiða hóflegt gjald fyrir þjónustuna og skrá börnin sín í gegnum Abler hér.
Starfsmenn Íþróttafélaganna Gerplu, Breiðabliks og HK.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Óskilamunir úr bláa og græna bílnum fara í Kórinn – Óskilamunir úr rauða bílnum fara í Gerplu (Versölum).
Rauði bílinn s: 621-4107
Græni bílinn s: 621-4108
Blái bílinn s: 621-4120
Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn komi upplýsingum til frístundaheimilanna eða skólans ef barnið þeirra á að taka bílinn á æfingu og þá hvaða lit og klukkan hvað. Starfsmenn frístundaheimilanna hafa verið duglegir að fylgja börnunum út á stoppistöð og þegar í bílinn er komið er það starfsmaður hans sem tekur við barninu og aðstoðar það við að fara út á réttum stað.
Æskilegt er að forráðamenn fari tímanlega í gegnum rúntinn með barninu og sýni því hvar það á að fara út svo barnið sé öruggara þegar aksturinn hefst.
Bílarnir eru þrír og eru merktir með þremur mismunandi litum í framrúðunni.
Þannig geta börnin þekkt sína rútu eftir litnum. Hver bíll fer tvær ferðir á dag. Ekki er gert ráð fyrir því að bíllinn aki börnunum til baka á frístundaheimilin að lokinni æfingu og eru börnin því á ábyrgð foreldra eftir að æfingu lýkur. Starfsmenn verða í bílunum til að aðstoða börnin við að fara á réttan æfingastað.
Frístundavagninn er fyrst og fremst hugsaður fyrir börn í 1. - 4.bekk. Ef nægt pláss er í bílunum er eldri börnum velkomið að nýta þá en 1.-4. bekkur er alltaf í forgangi.
Við hlökkum til að eiga gott samstarf og vonumst til að vagninn nýtist sem flestum í vetur.
Gildir frá 9. júní til 18. ágúst
Opnunartími hússins:
Mánudaga–fimmtudaga: 08:00–21:00
Föstudaga: 08:00–20:00
Laugardaga: 10:00–14:00
Sunnudaga: LOKAÐ
Athugið: Opnunartími getur breyst án fyrirvara vegna leikja og annarra viðburða í húsinu.
LOKAÐ 1.–4. ágúst vegna verslunarmannahelgar.
Vetraropnun tekur aftur gildi eftir 18. ágúst - sjá fyrir neðan
Opnunartími Kórsins: sunnudagur til föstudags 8:00-22:00 / laugardagur 08:00-20:00
Opnunartimi skrifstofu HK: mánudagur til föstudags 9:00 - 17:00
Símatími skrifstofu HK: mánudagur til föstudags 11:00 - 15:00