Skráning iðkenda - Fótbolti

Skráning iðkenda - Fótbolti

Allar skráningar í félagið fara í gegnum Abler. Öll samskipti milli þjálfara og foreldra fara fram í gegnum forritið og því mikilvægt að kynna sér vel og sækja forritið. Viljum við biðja ykkur að yfirfara vel allar upplýsingar (netföng og síma) en skráningar eru eru ákveðið öryggistæki og mikilvægt að réttar upplýsingar séu til staðar þegar ná þarf í aðstandendur. 

  • Þjálfun við bestu aðstæður með vel menntuðum þjálfurum

  • Ferðakostnaður niðurgreiddur að hluta þegar keppt er á KSÍ mótum fyrir utan höfuðborgarsvæðið

  • Markmannsæfingar

  • Styrktaræfingar fyrir 11 manna bolta

  • Aðgangur að Abler þar sem æfingar og mót eru skráð inn

Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur fer á. Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd HK. Ef ekki hefur verið gengið frá skráningu fyrir iðkanda er hann ekki tryggður á æfingum, sjá nánar á vef félagsins: https://www.hk.is/is/um-hk/slysatrygging 

Þjálfarar skrá mætingar á Abler þar sem forráðamenn geta fylgst með mætingu sem og sett inn tilkynningar ef iðkandi kemst ekki t.d. vegna veikinda.

Ath. mikilvægt að kynna sér upplýsingar hér að neðan. Leiðbeiningar fyrir notkun frístundastyrks sem og skráningar- og notendaleiðbeiningar fyrir Abler.


SKRÁNINg hafin hér

Æfingatafla | Fótbolti (hk.is)

Æfingagjöld | Fótbolti (hk.is)

Þjálfarar knattspyrnudeildar | Fótbolti (hk.is)

Leiðbeiningar hvernig þú kaupir þjónustu í vefverslun:

Til þess að gerast notandi þarf forráðamaður að nýskrá sig og sækja Abler snjallforritið.

- Fyrsta skrefið er að fara á skráningarsíðu félagsins HK | Vefverslun (sportabler.com) (Eða beint á viðkomandi hlekk hverrar deildar hér ofar)

- Næst þarftu að skrá þig inn í hægra horninu uppi "Innskrá í Sportabler". Í hnettinum við hliðiná getur þú valið tungumál.

Ef þú ert með Sportabler aðgang nú þegar þá notar þú hann til að skrá þig inn. Ef þú ert ekki með Sportabler aðgang þá velur þú nýskrá neðst í hægra horninu. 

ATH mikilvægt er að þú skráir þig inn sem þú sjálfur en ekki sem barnið þitt.

- Ef nýskráning er valin þá þarftu að setja inn tölvupóst og kennitölu. Þegar þú smellir á Senda boð færðu staðfestingarpóst í tölvupósti og fylgir því ferli, velur lykilorð og ert þá kominn með aðgang. ATH staðfestingarpóstur gæti endað í Spam, junk eða trash í tölvupóstinum.

- Ef það kemur enginn staðfestingarpóstur á netfangið hjá þér eða villuboð kemur upp þá biðjum við ykkur að hafa samband í þjónustuver Abler þar sem öll mál eru leyst. 

- Þegar allt er klappað og klárt þá tekur við innskráning. Þegar þú skráir þig inn ertu beðinn um að auðkenna þig. Í kjölfarið lendir þú inn á island.is þar sem þú getur auðkennt þig með rafrænum skilríkjum

- Þegar þú lýkur við auðkenningu þá ferðu beint inn á vefverslunina og getur keypt þá þjónustu sem er í boði. ATH þetta ferli þarftu bara að ganga í gegnum einu sinni. Efst vinstra megin sérðu sjálfan þig og börnin þín og uppi í hægra horninu sérðu yfirlit yfir reikninga og áskriftir sem þú hefur keypt.

Næsta skref er að finna þá þjónustu sem þú vilt kaupa fyrir sjálfan þig eða barnið þitt. Hægt er að nota frístundastyrk, greiðsludreifingu og systkinaafslátt í kaupferlinu. 

Skref 1 - Velja hvaða iðkanda þú ert að kaupa þjónustuna fyrir. ATH gætið að því að rétt íþróttagrein/þjónusta sé valin

Skref 2 - Ef önnur þjónusta hefur verið keypt sem fellur undir skilmála systkina eða fjölgreinaafslátt kemur hann í skrefi 2 í kaupferli.

Skref 3 - Í þessu skrefi velur þú hvort þú viljir nota frístundastyrk eða ekki.  ATH þessi möguleiki kemur ekki upp ef þjónustan sem er til sölu býður ekki upp á frístundastyrk.

Skref 4 -  Í skrefi 4 sérðu hvað þú átt mikinn frístundastyrk inni og í línunni fyrir neðan velur þú þá upphæð sem þú vilt ráðstafa. 

Skref 5 -  Hérna býður félagið upp á greiðsludreifingu (ef við á).

Skref 6 - Hérna fyllir þú inn kortaupplýsingar. Val um kredit-/ debit kort eða greiðsluseðil.

Hægra megin í kaupferlinu er svo kvittun sem þú sérð hvernig upphæðin reiknast eftir notkun á frístundastyrk, systkinaafslætti og greiðsludreifingu.