_
Í sumar mun HK bjóða upp á fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 10 ára (2015-2019), bandý-, blak-, borðtennis-, handknattleiks- og knattspyrnunámskeið fyrir 7 til 10 ára (2015-2018) og fjölgreinanámskeið fyrir 6 til 10 ára (2015-2019). HK reynir eftir fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumarið er engin undantekning. Skipulögð dagskrá frá kl. 09:00-12:00 og 13:00-16:00 alla virka daga. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og er skráning sérstaklega í það.
Allir umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Skráning er hafin hér: HK | Vefverslun
Smellið hér fyrir frekari leiðbeiningar um skráningu í gegnum Abler
_
Í ár verða 6 mismunandi námskeið í boði:
Bandýskóli HK, hálfur dagur f.h. Skráning hér
|
4 námskeið (2015-2018)
|
Blakskóli HK, hálfur dagur e.h. Skráning hér
|
5 námskeið (2015-2018)
|
Borðtennisskóli HK, hálfur dagur f.h. Skráning hér
|
5 námskeið (2015-2018)
|
Fjölgreinanámskeið, heill dagur Skráning hér
|
2 námskeið (2015-2019)
|
Handknattleiksskóli HK, hálfur dagur e.h. Skráning hér
|
5 námskeið (2015-2018)
|
Knattspyrnuskóli HK, hálfur dagur f.h. Skráning hér
|
5 námskeið (2015-2018)
|
Gagnlegar upplýsingar:
- Sama verð er á öll ½ dags námskeið.
- 10% systkinaafsláttur veittur af námskeiðum innan sömu deildar.
- Ekki er heimilt að breyta skráningu námskeiða eftir að námskeið er hafið.
- Hvert stakt námskeið reiknast 3 klst.
- Fyrir heilsdagsnámskeið eru tvö stök námskeið sett í körfu eða eitt fjölgreinanámskeið.
- Gert er ráð fyrir að börnin taki með sér hollt nesti og vatnsbrúsa en einn nestistími er á hverju 3 klst. námskeiði.
- Börn sem eru á námskeiðum fyrir og eftir hádegi skulu mæta með hollt og gott nesti. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu gegn vægu gjaldi, skráning í gegnum Abler.
- Í Kórnum er aðstaða fyrir iðkendur til að borða sem ekki eru skráð í heitan mat í hádeginu. Starfsmenn eru á svæðinu.
- SAMLOKUKORT og annað snarl er til sölu í afgreiðslu í Kórnum.
- Fjölgreinanámskeið er fyrir öll börn fædd 2015-2019. Börnin fá tækifæri til að kynnast fimm íþróttagreinum; bandý, blaki, borðtennis, handbolta og knattspyrnu, ásamt útiveru og náttúrunni í nærumhverfi HK. Heit máltíð í hádeginu er innifalin í verði. Hver dagur er vel skipulagður. Börnin mæta í Kórinn og enda daginn þar líka.
- Við opnum kl. 08:45 á morgnana og forráðamenn eru beðnir að sækja börnin sín tímanlega en öllum námskeiðum lýkur kl. 16:00.
Verðskrá:
Námskeið ½ dagur 3 klukkustundir (5 dagar) Heitur matur í hádeginu
|
8.900 kr. 5.000 kr.
|
Námskeið ½ dagur 3 klukkustundir (4 dagar) Heitur matur í hádeginu
|
7.200 kr.* 4.000 kr.
|
Fjölgreinanámskeið heill dagur 7 klukkustundir (5 dagar)
|
22.800 kr.
|
*Stjörnumerktar vikur eru 4 dagar
Fleiri gagnlegar upplýsingar:
- HK áskilur sér rétt til að sameina námskeið ef ekki næst lágmarksþátttaka.
- HK áskilur sér rétt til að fella niður hádegismat, náist ekki lágmarksþátttaka (20) í hverri viku.
- HK áskilur sér rétt til að loka fyrir skráningu á námskeið ef hámarksfjölda er náð.
- HK áskilur sér rétt til að breyta dagskrá (t.d. vegna veðurs eða mætingar á námskeið).
- Það er mikilvægt að nærast vel og viljum við því biðla til foreldra að senda börn með hollt og gott nesti og vatnsbrúsa (eitt nesti á hverju 3 klst. námskeiði)
- ATHUGIÐ! Hnetur og aðrir bráða ofnæmisvaldar bannaðir.
- Iðkendur eru beðnir um að mæta klæddir eftir aðstæðum. Eftir veðri ef útivera er á dagskrá og eða í viðeigandi klæðnaði, íþróttafötum og helst íþróttaskóm.
Frekari upplýsingar um námskeið og fyrirkomulag námskeiða veitir íþrótta- og markaðsstjóri HK, arnor@hk.is.
