Gleði - Virðing - Metnaður


Gildi og einkunnarorð HK eru eitthvað sem við viljum að endurspeglist í öllu innan félagsins; í íþróttinni, í þjálfuninni, í keppni, í starfinu og svo framvegis. Þannig myndast samhljómur innan starfsins í einu og öllu óháð deild og verkefni.

​Þau voru unnin á haustmánuðum 2014.

Sem dæmi um notkun á orðunum þá má segja:

Gleði

  • í íþróttinni
  • í leiknum
  • í æfingunni
  • í starfinu
  • í vinnunni
  • í HK

Metnaður

  • í íþróttinni
  • í leiknum
  • í æfingunni
  • í starfinu
  • í HK

Virðing

  • fyrir íþróttinni
  • fyrir leiknum
  • fyrir æfingum
  • fyrir samherjum
  • fyrir mótherjum
  • fyrir þjálfurum
  • fyrir dómurum
  • fyrir HK

Hlutverk HK

Hlutverk félagsins er að skapa umhverfi sem hvetur félagsmenn til að ná markmiðum sínum og skara fram úr í leik og starfi. Þannig er lagður grunnur að félagslegu, andlegu og líkamlegu heilbrigði einstaklingsins. Með því að gera honum kleift að finna sér hlutverk í félaginu, hvort sem er til ánægju eða afreka, og bera merki félagsins með stolti og virðingu.

Framtíðarsýn HK 2020

HK er fjölskylduvænt og persónlegt félag sem tekur vel á móti iðkendum sínum í einni af bestu íþrótta- og félagsaðstöðu landsins. 

  • HK er eftirsóknarvert íþróttafélag í leik og starfi þar sem áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggjandi samskipti. 
  • HK hefur skýra íþrótta- og afreksstefnu sem skilar félaginu í fremstu röð á öllum sviðum. 
  • HK-ingar eru stoltir og styðja félagið sitt innan vallar sem utan.