Góður félagi fallinn frá

Jón Jörundsson fyrverandi stjórnarmaður hanknattleiksdeildar HK er fallinn frá. 
Jón var mikill happafengur fyrir deildina á sínum tíma og vann mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið. Hann var einn af þeim sem kom meistaraflokk kvenna á laggirnar ásamt því að standa fremstur í brúnni þegar kom að fyrstu evrópuleikjum og fyrsta bikarmeistaratitli meistaraflokks karla árið 2003. Engin verk voru of smá eða of stór fyrir Jón, hann gekk í allt. Jón var bæði stjórnarmaður og mjög virkur í foreldrastarfinu og fylgdi sínum börnum vel eftir sem spiluðu öll fyrir HK. Jón var heiðraður fyrir sín störf á 50 ára afmælishátíð HK og  var sæmdur heiðursmerki.
HK sendir aðstandendum Jóns innilegar samúðarkveðjur.

Minning um góðan mann lifir...