- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Sumarnámskeið HK
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
Í sumar mun HK bjóða upp á fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 10 ára (2014-2018). HK reynir eftir fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumarið er engin undantekning. Skipulögð dagskrá frá kl. 09:00-12:00 og 13:00-16:00 alla virka daga. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og er skráning sérstaklega í það.
Allir umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Skráning er hafin hér: HK | Vefverslun
Smellið hér fyrir frekari leiðbeiningar um skráningu í gegnum Abler
_
Í ár verða 5 mismunandi námskeið í boði:
Blakskóli HK |
5 námskeið (2013-2017) |
Borðtennisskóli HK |
4 námskeið (2014-2017) |
Fjölgreinanámskeið |
2 námskeið (2015-2018) |
Handboltaskóli HK |
5 námskeið (2014-2017) |
Knattspyrnuskóli HK |
6 námskeið (2014-2017) |
Gagnlegar upplýsingar:
Fjölgreinanámskeið í ágúst er fyrir öll börn fædd 2015-2018. Börnin fá tækifæri til að kynnast fjórum íþróttagreinum; blaki, borðtennis, handbolta og knattspyrnu, ásamt útiveru og náttúrunni í nærumhverfi HK. Heit máltíð í hádeginu er innifalin í verði. Hver dagur er vel skipulagður. Börnin mæta í Kórinn og enda daginn þar líka.
Við opnum kl. 08:45 á morgnana og forráðamenn eru beðnir að sækja börnin sín tímanlega en öllum námskeiðum lýkur kl. 16:00.
Verðskrá:
Námskeið ½ dagur |
8.500 kr. |
Námskeið ½ dagur |
6.800 kr.* |
Fjölgreinanámskeið heill dagur |
21.000 kr. |
Fjölgreinanámskeið heill dagur |
16.600 kr.* |
*Stjörnumerktar vikur eru 4 dagar
Fleiri gagnlegar upplýsingar:
Frekari upplýsingar um námskeið og fyrirkomulag námskeiða veitir íþrótta- og markaðsstjóri HK, arnor@hk.is.