Samúel lætur af störfum

Samúel Ívar Árnason lætur staðar numið sem þjálfari meistaraflokks kvenna.

Sammi stjórnaði liðinu á krefjandi tímum og gerði það af mikilli fagmennsku. Hann gaf mörgum ungum leikmönnum sín fyrstu tækifæri sem hafa náð miklum framförum undir hans stjórn.

HK þakkar honum kærlega fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum velfarnaðar.