Katrín Rósa Egilsdóttir semur við HK!


Knattspyrnudeild HK hefur samið við Katrínu Rósu Egilsdóttir

Katrín Rósa er fædd árið 2006. Hún er snöggur sóknarmaður sem varnarmenn andstæðinganna eiga erfitt með að ráða við. Hún er búin að eiga frábært tímabil með 3.flokki og er markahæsti leikmaður liðsins í sumar. Hún hefur æft með meistaraflokki félagsins í sumar og hefur staðið sig vel.

Við óskum Katrínu til hamingju með samninginn og fögnum því að halda henni innan raða HK.

 

Áfram HK!