Sóley María Davíðsdóttir semur við HK!


Knattspyrnudeild HK hefur samið við Sóleyju Maríu Davíðsdóttir

Sóley María er fædd árið 2006. Hún er snöggur, örvfættur varnarmaður og er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið bæði sem bakvörður og miðvörður. Hún hefur æft með meistaraflokki félagsins í sumar og hefur staðið sig vel.

Við óskum Sóleyju til hamingju með samninginn og fögnum því að halda henni innan raða HK.

 

Áfram HK!