Framkvæmdastjóri HK

Handknattleiksfélag Kópavogs, HK, auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra félagsins. Við leitum að öflugum stjórnanda og leiðtoga til leiða starf félagsins, bæði starfsmenn og sjálfboðaliða. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og fjármálum, og mannvirkjum félagsins. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf þar sem reynir á leiðtogahæfileika framkvæmdastjóra. Þá ber framkvæmdastjóri ábyrgð á stefnumótun og framfylgd hennar.

Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á allri starfsemi félagsins, mannauðsmálum, rekstri deilda og fjármál
• Leiða tekjuöflun félagsins í samstarfi við deildarstjórnir og aðalstjórn
• Stefnumótun, gerð rekstraráætlana og eftirfylgni með þeim
• Innleiðing stefnu, eftirfylgni með henni og ákvörðunum aðalstjórnar
• Markmiðasetning og eftirfylgni
• Efla félagsandann og vinna að uppbyggingu félagsins
• Leiða samskipti við deildarstjórnir og sjálfboðaliða félagsins
• Samskipti við sérsambönd og opinbera aðila
• Umsjón stjórnarfunda

Hæfniskröfur
• Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi eða umfangsmikil reynsla af sambærilegu starfi
• Mikil hæfni í samskiptum og sterk leiðtoga- og skipulagshæfni
• Hefur góða innsýn í og reynslu af stjórnun, rekstri og fjármálum
• Frumkvæði, áræðni og jákvætt viðhorf
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Reynsla og þekking á íþróttastarfsemi og rekstri innan íþróttahreyfingarinnar er stór kostur.

HK er íþróttafélag sem hefur innan sinna raða knattspyrnudeild, handknattleiksdeild og blak ásamt dansdeild, borðtennisdeild og bandídeild. HK hefur yfir að ráða framúrskarandi aðstöðu, bæði knatthús innandyra og tvöfaldan handboltavöll. Framundan eru spennandi verkefni á sviði stefnumótunar og þróun íþróttastarfsins ásamt uppbyggingu stúku á félagssvæði félagsins við Kórinn sem framkvæmdastjóri mun leiða í samstarfi við aðalstjórn félagsins.

Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember 2023. Nánari upplýsingar veitir Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, formaður aðalstjórnar HK, arnina@hk.is

Umsóknir óskast í gegnum Alfred.is: https://alfred.is/starf/framkvaemdastjori-99