- HK
- Um HK
 - Skráning
 - Fréttir
 - Veislusalur
 - Hlaupahópur
 - Íþróttaskóli
 - Frístundarvagn
 - Rafíþróttadeild
 - Árskort
 - Handknattleiksfélag Kópavogs
 - Happdrætti 2025
 
 - Bandý
 - Borðtennis
 - Blak
 - Dans
 - Fótbolti
 - Handbolti
 - Rafíþróttir
 
Hjörtur Ingi Halldórsson hefur skrifað undir 2 ára samning við HK.
Hjörtur kom til okkar frá Haukum árið 2020 og hefur tekið miklum framförum í HK-treyjunni og verið einn besti leikmaður félagsins síðan. Hann var markahæsti leikmaður liðsins á síðustu tímabili þegar við komumst upp úr Grillinu og er annar tveggja markahæstu manna á þessari leiktíð.
Hjörtur er enn einn leikmaðurinn sem ákveðið hefur að framlengja hjá HK sem undirstrikar svo sannarlega að menn hafi trú á framtíðinni í Kórnum. Við lítum á Hjört sem algjöran lykilleikmann í framtíð og okkur því mikil ánægja að hafa hann áfram innan okkar raða.