- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Skák
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Blakdeild HK - Neðrideildastarf 2026–2027
Hvað eru neðri deildir?
Neðri deildir eru eitt af þremur starfssviðum Blakdeildar HK. Hin tvö eru meistaraflokkar annars vegar og barna- og unglingastarf hins vegar.
Neðri deildir markast þannig af því að vera hvorki afreksstarfið (meistaraflokkar) né barna- og unglingastarf félagsins. Nafnið, neðri deildir, kemur til af því að æfingahóparnir senda lið í 2.–8. deild Íslandsmótsins. Í neðri deildum er því rými fyrir breiðan aldurshóp og ólík getustig.
Veturinn 2026–2027 eru starfandi sex kvennahópar í HK sem senda lið í Íslandsmótið, frá 2. deild niður í 7. deild.
Hjá körlum er einn æfingahópur sem sendir tvö lið í 2. og 3. deild Íslandsmótsins.
HK er með æfingatíma í íþróttahúsinu Fagralundi og íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Hóparnir æfa að jafnaði tvisvar sinnum í viku.
Ólík getustig og val í hópa
Iðkendur fá mest út úr íþróttinni með því að spila með samherjum sem eru getulega á svipuðum stað. Því eru iðkendur valdir í hópa og lið eftir getu í íþróttinni.
Þjálfararnir ráða ferðinni þegar iðkendum er raðað í hópa. Eðlilegt er að einhverjar tilfærslur séu á leikmönnum milli tímabila eða móta. Iðkendur geta komið með óskir, t.d. út frá félagslegum tengingum, um að færast EKKI upp um hóp/deild, en að óska eftir flutningi upp um deild á félagslegum forsendum þykir ekki við hæfi.
Karlahópurinn
Hjá körlunum er einn æfingahópur með nokkuð breitt getustig. Hópurinn er almennt opinn fyrir nýliðum en gerir þá kröfu til nýliða að þeir eigi getulega samleið með þeim sem fyrir eru. Líkt og hjá konunum ákveða þjálfararnir hvaða leikmenn spila í hvaða liði.
Æfingagjaldið
Iðkendur í neðri deildum greiða æfingagjald til blakdeildar samhliða skráningu.
Skráning fer fram í gegnum heimasíðu HK:
https://www.hk.is/blak/skraning-idkenda
Gjaldið er 99.000 kr. fyrir veturinn 2026–2027 og ber að standa straum af launum til þjálfara, þátttökugjaldi liðanna til BLÍ og öðrum rekstri deildarinnar. Boðið er upp á greiðsludreifingu æfingagjaldsins í skráningarferlinu.
Æfingagjaldið er hið sama óháð því hve virkur iðkandinn er í að sækja æfingar. Þá er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu æfingagjalds þó svo að iðkandi hætti eða hverfi frá æfingum í einhvern tíma.
Miðað er við að iðkendur hafi skráð sig fyrir 1. október.
Þátttaka í Íslandsmóti BLÍ
Íslandsmót neðri deilda fer fram á þremur helgarmótum. Veturinn 2026–2027 verður mótið helgarnar 13.–15. nóvember 2026, 5.–7. febrúar 2027 og 11.–13. mars 2027. Hvert lið þarf að vera með a.m.k. níu skráða leikmenn á skýrslu.
Leikmenn sem taka þátt í Íslandsmóti BLÍ þurfa að vera skráðir til þátttöku hjá Blaksambandinu. Það er gert á vef BLÍ:
https://bli.is/
Skráningin kostar 6.000 kr. Leikmenn standa sjálfir straum af þeim kostnaði.
Þjálfarar þurfa að vita í tíma (fyrir 1. október) hvaða iðkendur hyggjast taka þátt í Íslandsmótinu og hverjir ekki. Æfingar í aðdraganda móta taka oftast mið af þörfum liðsins sem er að fara á mótið.
Félögin skipta með sér að halda mótin. Þegar HK heldur mót í Digranesi og Fagralundi taka iðkendur og leikmenn þátt í mótshaldinu og þeim fjölmörgu verkefnum sem því fylgja.
Kostnaður sem leggst á iðkendur vegna þátttöku í mótunum er mismikill. Einhver mótanna eru haldin utan höfuðborgarsvæðisins og kalla á ferðir, gistingu o.þ.h. með tilheyrandi kostnaði. Liðsmenn velja sjálfir aðila úr sínum hópi til að skipuleggja ferðirnar, bóka gistingu o.s.frv.
Sú hefð hefur skapast að ef liðið tekur þjálfara með sér á mót út á land (þjálfara sem er ekki að spila með liðinu), þá greiða liðsmenn gistingu og annan kostnað sem því fylgir. Deilist sá kostnaður á alla skráða liðsmenn óháð því hvort þeir komist á viðkomandi mót eða ekki.
Félagsaðildin
Í blakinu í HK ertu þátttakandi í „non-profit“ félagsstarfi. Fyrir utan þjálfarana hefur blakdeildin engan launaðan starfsmann til að sinna félaginu, nema hvað skrifstofa HK hjálpar til með félagsgjöld, bókhald og bakvinnslu. Þau verkefni sem þarf að leysa til að halda starfseminni gangandi deilast því á sjálfboðaliða úr röðum iðkenda. Meðal verkefna má nefna:
Að taka þátt í blakinu er þannig frábrugðið því að mæta t.d. í líkamsræktarstöð og kallar á annað viðhorf. Þó svo að iðkendur greiði sitt iðkendagjald eiga þeir því í félagssambandi við HK fremur en viðskiptasambandi.
Flutningur milli liða
Komi til þess að iðkandi sé færður á milli hópa/liða á tímabili sem er hafið þarf það að gerast með formlegum hætti. Ganga þarf frá því formlega á vef BLÍ og virða þær dagsetningar sem BLÍ tilgreinir fyrir félagaskipti. Iðkandinn greiðir kostnað sem fylgir félagaskiptaskráningunni.
Það sama á við ef iðkandi ætlar að skipta um félagslið á tímabilinu.
Án formlegra félagaskipta er viðkomandi leikmaður ekki löglegur á næsta móti og liðið sem setur hann inn á getur verið dæmt úr leik.
Skemmtimót
Á hverjum vetri standa ólík félög fyrir óformlegum blakmótum. Þátttaka í slíkum mótum er valfrjáls. Sumir hópar nota slík mót sem æfingamót fyrir sitt lið. Í öðrum tilfellum riðlast hópaskipan með einhverjum hætti, án þess að gert sé veður úr því.
Stærsta skemmtimótið er án efa öldungamótið, sem haldið er ár hvert í lok apríl eða byrjun maí. Það sama á við þar, að oftast setja hóparnir saman lið fyrir mótið. En svo er líka viðurkennt að liðsskipan á öldungamótinu sé önnur og að einstaka leikmenn kjósi að spila með gömlum félögum. Í þessum efnum er æskilegt að liðsfélagar viti hvar menn standa í góðum tíma fyrir mótið.