- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Rafíþróttir
- Verslun
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Skák
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Hlaupahópur
Æfingar
Hópurinn æfir tvisvar til þrisvar sinnum í viku, þriðjudaga kl. 17:45 og fimmtudaga kl. 17:45.
Einnig eru lengri æfingar á laugardögum þar sem hópurinn hittist án þjálfara.
Allir fá verkefni við sitt hæfi og hefja hlaupið á sama tíma og reyna að enda á sama tíma. Æfingarnar eru fjölbreyttar, allt frá rólegu utanvegaskokki yfir í interval æfingar á braut og allt þar á milli.
Við notum Training Peaks forritið og fáum þannig æfingarnar t.d. beint í úrið.
Við erum dugleg að taka þátt í smærri og stærri hlaupum og höfum staðið fyrir okkar eigin hlaupi að hausti, Vatnsendahlaupið (10 km. utanvegahlaup í jaðri Heiðmerkur) fyrst haldið árið 2024.

Æfingagjöld
Árs áskrift 2026/27 (12 mánuðir) Áskriftartímabil: 1.október - 30.september kr. 37.500.-
Vetrarönn 2026 - 2027 (6 mánuðir) Áskriftartímabil: 1. október - 31. mars kr. 21.500
Mánaðaráskrift : 4.000. - Fyrir þá sem að vilja prófa (áskriftin endurnýjast mánaðarlega, engin binding en þarf að segja henni upp fyrir 25.hvers mánaðar)
Til að skrá maka á makaafslætti (50%) þá þarf að senda tölvupóst á hronn@hk.is sem gengur frá skráningu á réttu verði.
Innifalið í æfingargjöldum er þjálfun, aðgangur að lokuðum Facebook hóp, æfingar á Training Peaks, afsláttarkjör á hlaupatengdum vörum hjá verslunum.