- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Á heimasíðu Handknattleikssamband Íslands kemur fram að Aðalsteinn Eyjólfsson hjá Víkingi og Hilmar Guðlaugsson hjá HK hafi verið valdir þjálfarar tímabilsins eftir frábært starf með lið sín á nýliðnu keppnistímabili.
Þessi viðurkenning kemur ekki á óvart þeim sem fylgst hafa með starfi Hilmars hjá HK. Undir hans stjórn hefur liðið tekið miklum framförum og sýnt þann metnað og fagmennsku sem einkennir hans störf. Hilmar hefur um árabil verið einn af lykilmönnum í handboltastarfi HK og lagt sitt af mörkum bæði sem þjálfari meistaraflokks og í uppbyggingu yngri flokka félagsins.
Við hjá HK erum afar stolt af þessum verðskuldaða heiðri og óskum Hilmari innilega til hamingju með viðurkenninguna. Hún er staðfesting á þeirri miklu vinnu, þekkingu og elju sem hann hefur lagt í starf sitt og þann árangur sem liðið hefur náð undir hans stjórn.
Til hamingju, Hilmar!